Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Þúsundum fugla slátrað að óþörfu

  • What: Farmers in Finland had to cull thousands of birds due to a false salmonella diagnosis
  • Impact: No direct effect on regular users
Read Full Article →

Finnskir kjúklingabændur þurftu að slátra á fimmta þúsund fuglum eftir að tilkynnt var um salmonellu. Síðar kom í ljós að sýni voru ranglega greind, en bændurnir sitja uppi með skaðann. Bændum á býli nærri Lappeenranta í suðausturhluta Finnlands var tilkynnt um að salmonella hefði greinst þar sumarið 2024. Þeim var gert að slátra ríflega fjögur þúsund fuglum til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu. Síðar kom hins vegar í ljós að rannsóknarstofan hafði ranglega greint sýnið jákvætt. Í umfjöllun finnska ríkisútvarpsins kemur fram að bændurnir gagnrýna stjórnvöld fyrir að vilja ekki breyta lögum á þann veg að staðfesta þurfi sýni sem greinast jákvæð. Hagsmunasamtök hafa sömuleiðis þrýst á landbúnaðaryfirvöld að jákvæð sýni séu greind aftur. Ráðuneytið segir Evrópureglur koma í veg fyrir slíkt, en ætlar að bregðast við með því að skylda rannsóknarstofur til þess að ráðfæra sig við Matvælastofnun Finnlands, ef grunur er um að sýni hafi ranglega greinst jákvætt. Bændurnir hafa jafnframt staðið í stappi við rannsóknarstofuna um bætur. Það sé fáránlegt að þurfa að borga fyrir annarra mistök á borð við þessi, án þess að fá neitt í staðinn. Þeir búast ekki við að geta náð fyrri framleiðslugetu fyrr en í lok sumars.

Share this article