Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Utanríkisráðherrann biður heimsbyggðina um liðsinni við að koma í veg fyrir frekari hörmungar

  • What: Cuban foreign minister calls for international support against sanctions
  • Impact: Political and economic situation in Cuba
Read Full Article →

Bruno Rodriguez Parrilla utanríkisráðherra Kúbu hefur biðlað til heimsbyggðarinnar um liðsinni svo koma megi í veg fyrir að frekari hörmungar skelli á landinu. Kúba hefur mátt þola hafnbann Bandaríkjanna á olíu frá Venesúela mánuðum saman, sem skapað hefur djúpa orkukreppu ofan á bágt efnahagsástand sem varað hefur um árabil vegna viðskiptaþvingana. Matvæla- og lyfjaskortur er landlægur og raforkukerfið er komið að fótum fram . Rodriguez Parrilla ávarpaði öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í gær og sagði tíma til kominn að alþjóðasamfélagið standi með Kúbu. „Ég hvet alþjóðasamfélagið til að sameinast svo koma megi í veg fyrir mannúðarvoða af völdum hafnbanns eða vopnaskaks,“ sagði Rodriguez. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur iðulega gefið í skyn að hernaðarárás verði gerð á Kúbu og utanríkisráðherrann Marco Rubio sagði í liðinni viku að Bandaríkjamenn væru harðákveðnir í að fella kommúnistastjórnina í landinu. Það var eftir að bandarísk yfirvöld ákærðu Raúl Castro , fyrrverandi Kúbuforseta, fyrir morð, samsæri um morð og eyðileggingu flugvéla. Ákæruna sagði Rodriguez vera af pólitískum ástæðum og að fáránlegt væri að fullyrða að Bandaríkjunum stafaði nokkur hætta af Kúbu.

Share this article