Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ísraelsher gerir þungar árásir á innviði Hezbollah í Týros

  • What: Israel conducts airstrikes on Hezbollah positions in Tyre
  • Impact: Civilian areas in Tyre, Lebanon affected
Read Full Article →

Ísraelsher hefur lagt til atlögu að hernaðarinnviðum Hezbollah-hreyfingarinnar nærri hafnarborginni Týros í suðurhluta Líbanon. Hér má sjá skemmdir eftir loftárás Ísraela á Týros 26. maí.EPA / Stringer Skömmu áður hafði herinn skipað íbúum að forða sér brott og halda sig fjarri vegna yfirvofandi árása. Ísraelsher kveðst í yfirlýsingu á samskiptamiðlinum Telegram nauðugur einn kostur að ráðast af hörku á Hezbollah. Líbanski ríkisfréttamiðillinn NNA greinir frá árásum á Týros auk svæða norðan við borgina þar sem eldar logi í byggingum. Týros er ein af elstu borgum heims og er á heimsminjaskrá UNESCO vegna þess.

Share this article