- What: Temu fined for selling unsafe products in the EU
- Impact: Consumers may be exposed to unsafe products
Kínverska netverslunin Temu verður sektuð um 200 milljónir evra (um þrjátíu milljarða króna) fyrir að koma ekki nægilega vel í veg fyrir að hættulegar vörur, þar á meðal fyrir börn, séu seldar á vegum fyrirtækisins innan ríkja Evrópusambandsins. Framkvæmdastjórn ESB tilkynnti þetta í morgun, en sektin er sú hæsta sem lögð hefur verið á netfyrirtæki á grundvelli DSA-reglugerðarinnar um fyrirtæki af þessu tagi; í desember í fyrra var X (áður Twitter) sektað um 120 milljónir evra. Rannsókn sem gerð var á Temu á vegum framkvæmdastjórnarinnar leiddi til dæmis í ljós að mjög stór hluti þeirra hleðslutækja sem Temu býður til sölu, standist ekki öryggiskröfur, og að stór hluti barnaleikfanga sem í boði eru séu hættuleg vegna efnainnihalds eða að þau innihaldi lausa hluti sem geti valdið köfnun. Samkvæmt DSA-reglugerðinni eiga fyrirtæki eins og Temu að gera víðtækar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að vörur af þessu tagi séu seldar til neytenda í aðildarríkjum Evrópusambandsins; þær ráðstafanir sem Temu hefur gert eru hvergi nærri því að vera nógu góðar, sagði embættismaður frá framkvæmdastjórninni við blaðamenn hér í Brussel í morgun, þegar ákvörðunin var kynnt. „Áhættumatið er einn af mikilvægustu þáttum reglugerðarinnar og þess vegna er þetta brot sérstaklega alvarlegt,“ sagði embættismaðurinn. Unnið að upptöku hjá EES-ríkjunum DSA-reglugerðin er hluti af löggjöf um innri markaðinn og EES-ríkjunum, Íslandi Noregi og Lichtenstein ber því að taka hana upp. Sú vinna hefur staðið yfir undanfarin misseri, en er vandkvæðum háð, meðal annars vegna þess að með henni þyrftu EES-ríkin að framselja framkvæmdavald til Evrópusambandsins. Ráðherrar þessa málaflokks, bæði í Noregi og á Íslandi hafa hins vegar lýst yfir vilja til að taka þessa reglugerð upp eins fljótt og auðið er.