- What: Míla reached a new settlement with Samkeppniseftirlitið over antitrust violations
- Impact: 200 million krónur fine
Míla og Samkeppniseftirlitið (SKE) hafa gert með sér nýja sátt sem felur í sér endurskoðun á sátt frá árinu 2022, sem gerð var í kjölfar sölu Mílu til innviðasjóðs undir stjórn Ardian France SA. Samhliða hefur Míla viðurkennt að hafa brotið tiltekin skilyrði sáttarinnar og samþykkt að greiða 200 milljónir króna í stjórnvaldssekt vegna þeirra. „Með nýgerðri sátt við Samkeppniseftirlitið hefur Míla fallist á að tíðni og umfang samskipta milli Mílu og Símans frá október 2023 til desember 2024 hafi verið til þess fallið að takmarka hvata Símans til að kaupa þjónustu frá keppinautum Mílu, umfram það sem kaupskylda Símans samkvæmt samningi fyrirtækjanna kvað á um. Í þessu hafi falist brot á gildandi skilyrðum,“ segir í tilkynningu á vef SKE. Ljósleiðarinn styrkt stöðu sína mjög á höfuðborgarsvæðinu Eftirlitið segir að skilyrðum nýrrar sáttar sé m.a. ætlað að tryggja enn frekar að samkeppni geti ríkt um þau viðskipti Símans sem falla utan takmarkana heildsölusamningsins við Mílu og að Míla beiti sér ekki fyrir því að viðskiptavinir Símans (heimili og fyrirtæki) séu færð yfir á net Mílu frá netum keppinauta Mílu. „Rannsókn Samkeppniseftirlitsins hefur leitt í ljós breytingar á stöðu Mílu á mörkuðum fyrir heimtaugar, þ.e. aðgangi að kopar- og ljósleiðaratengingum og markaði fyrir gagnaflutning um heimtaugar (bitastraum). Ljóst er að Míla er enn með sterka stöðu á landsvísu á þessum mörkuðum (landsdekkandi) og býr yfir breiðu þjónustuframboði á öðrum sviðum innviða fjarskipta. Á hinn bóginn hafa aðrir keppinautar, einkum Ljósleiðarinn á sínum starfssvæðum (m.a. höfuðborgarsvæðinu), styrkt mjög stöðu sínu á liðnum árum og er nú með talsvert meiri hlutdeild þar í fjölda tenginga en Míla.“ Af þeim sökum hafi SKE fallist á að skilyrði um aðgang að kerfum, upplýsingagjöf og bann við samtvinnun og vöndlun gildi ekki nema á þeim landssvæðum þar sem Míla hefur umtalsverðan markaðsstyrk. „Er þetta í samræmi við mat Fjarskiptastofu á nauðsyn kvaða á grundvelli fjarkskiptalaga. Verði þessi breyting ekki gerð er hætt á að viðkomandi ákvæði sáttarinnar hamli samkeppni í stað þess að verja hana og efla.“ Staðfesti að ekki séu forsendur fyrir óbreyttum skilyðrum Við sölu Símans á Mílu til innviðasjóðs Ardian árið 2022 voru eignatengsl milli Mílu og Símans rofin. Á sama tíma var gerður langtíma heildsölusamningur milli Mílu og Símans. Í mars 2024 óskaði Míla eftir endurskoðun sáttarinnar í ljósi breyttra markaðsaðstæðna og aukinnar samkeppni. Skömmu áður hafði Fjarskiptastofa tilkynnt að kvöðum yrði aflétt af Mílu á tveimur mikilvægum fjarskiptamörkuðum á svæði sem nær til yfir 80% landsmanna því þar væri virk samkeppni. Sjá einnig Fagna ákvörðun Fjarskiptastofu og bíða nú eftir SKE Taldi Míla mikilvægt að sáttin við SKE yrði aðlöguð í samræmi við þessa niðurstöðu því ákveðin ákvæði hennar takmörkuðu getu Mílu til að keppa með eðlilegum hætti. Í desember 2024 barst SKE kvörtun frá samkeppnisaðila Mílu þar sem því var haldið fram að Míla hefði brotið gegn samkeppnislögum og sáttinni frá 2022. Í kjölfarið hóf SKE rannsókn og tilkynnti Mílu að ekki væri unnt að taka afstöðu til breytinga á sáttinni fyrr en leitt væri í ljós hvort grunur um ætluð brot Mílu ætti við rök að styðjast. Míla segist í tilkynningu hafa lagt fram ítarleg svör og SKE aflaði jafnframt upplýsinga frá Fjarskiptastofu og öðrum hagaðilum á fjarskiptamarkaði. „ Rannsókn SKE staðfesti einnig það sem Míla hefur lengi haldið fram – að samkeppni á fjarskiptamörkuðum hafi aukist mikið og því ekki lengur forsendur fyrir áframhaldandi óbreyttum skilyrðum á Mílu. Míla fagnar því að málinu sé nú lokið og að fyrirtækið fái aukið svigrúm til að keppa á jafnari grundvelli við aðra heildsöluaðila á fjarskiptamarkaði. Ný sátt skapar þannig traustari grunni fyrir virkari samkeppni, til hagsbóta fyrir bæði fyrirtæki og neytendur.“ Í tilkynningu SKE er bent á að skilyrði sáttarinnar frá árinu 2022 hafi annars vegar falið í sér að gerðar voru breytingar á langtíma heildsölusamningi milli Símans og Mílu, sem m.a. lá til grundvallar verðmati á Mílu við kaupin. Þannig hafi dregið verulega úr skuldbindingum um viðskipti Símans við Mílu „sem hefðu að óbreyttu útilokað að nær öllu leyti að keppinautar Mílu gætu boðið Símanum þjónustu“. Hins vegar hafi Míla skuldbundið sig til að lúta tilteknum skilyrðum í starfsemi sinni vegna sterkrar stöðu sinnar á markaðnum, en skilyrðin bönnuðu samkeppnishamlandi vöndlun og samtvinnun þjónustuþátta og tryggðu jafnan aðgang að kerfum, þjónustu og upplýsingum frá Mílu. SKE segir að við athugun eftirlitsins í kjölfar þess að Míla óskaði eftir endurskoðun á skilyrðum árið 2024 hafi komið fram vísbendingar um brot á tilteknum skilyrðum og samhliða komu fram kvartanir aðila á markaði í garð Mílu. Í mars 2025 var Mílu kynnt frummat SKE vegna ætlaðra brota á skilyrðunum. Í framhaldi óskaði Míla eftir sáttaviðræðum við eftirlitið með það að markmiði að ljúka rannsókn eftirlitsins á brotum Mílu og endurskoðun á gildandi skilyrðum. Sáttaviðræður hófust í september 2025.