Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Happdrætti Háskóla Íslands varar við svikahröppum

  • What: Happdrætti Háskóla Íslands (Icelandic Lottery) warns of scam ads circulating on social media platforms.
  • Impact: The ads impersonate HHÍ and other entities to steal payment or personal information.
Read Full Article →

Happdrætti Háskóla Íslands varar við svikaauglýsingum sem nú eru í dreifingum á samfélagsmiðlum. Í auglýsingunum er bæði vísað til Gullnámunnar og Reykjavik Casino, í tilkynningu frá Happdrætti háskólans segir að auglýsingarnar séu hvorki á vegum HHÍ né Gullnámunnar og tengist því starfsemi happdrættisins ekki með neinum hætti. Markmið auglýsinganna virðist vera að fá fólk til að skrá sig inn á síður þar sem óskað er eftir greiðslu- eða persónuupplýsingum. HHÍ hvetur fólk til þess að smella ekki á tenglana sem fylgja auglýsingunum. Hafi einhver þegar orðið fyrir tjóni hvetur HHÍ fólk til þess að tilkynna ma´lið til lögreglu og hafa smaband við sinn viðskiptabanka.

Share this article