- What: A man appeared in court in Sydney, Australia, charged with terrorism-related offenses following a shooting on Bondi Beach in December.
- Impact: The man is accused of 15 murders and other offenses related to the attack.
Naveed Akram og faðir hans, Sajid Akram, eru taldir hafa verið einir að verki þegar þeir skutu fólk af handahófi á Bondi-strönd í Sydney 14. desember. Lögreglumenn skutu Sajid til bana og því hefur Naveed einn verið ákærður í 59 liðum, meðal annars fyrir fimmtán morð og hryðjuverk. Hann mætti fyrir dómstól í Sydney í fyrsta sinn í dag í gegnum fjarfundabúnað en Akram situr í gæsluvarðhaldi í Goulburn-öryggisfangelsinu. Ástralski ríkisfjölmiðillinn ABC greinir svo frá. Lögregla telur feðgana hafa skipulagt árásina mánuðum saman. Þó er ekki talið að þeir hafi tilheyrt neinum hryðjuverkahópum. Meðal sönnunargagna í málinu eru myndbandsupptökur af Akram-feðgum að skjóta úr byssum og þá fannst einnig myndband í síma Naveeds, þar sem feðgarnir sitja með skotvopn sín fyrir framan fána Íslamska ríkisins og fordæma gyðinga og síonisma og rekja ástæður árásarinnar á Bondi-ströndinni. Forsætisráðherrann Anthony Albanese hefur fyrirskipað rannsókn á hvort eitthvað fór úrskeiðis hjá lögreglu og leyniþjónustu í aðdraganda árásarinnar. Neðri deild ástralska þingsins samþykkti í janúar frumvörp að hertum skotvopnalögum og lögum um hatursglæpi vegna hryðjuverkaárásarinnar á Bondi-strönd. Réttarhöldum í málinu verður haldið áfram í apríl. Ekki liggur fyrir hver afstaða Naveeds er til ákærunnar.