Jón Erik Sigurðsson varð í 25. sæti í svigi á Vetrarólympíuleikunum rétt í þessu. Þetta er besti árangur Íslendings í svigi frá árinu 2006. Aðeins 46 af 96 keppendum náðu að klára brautina í fyrri ferðinni en aðstæður urðu afar krefjandi eftir því sem leið á. Mikill snjór var í brautinni þegar Jón fór niður. Jón Erik skíðaði afar öruggt niður og endaði í 30. sæti. Það þýddi að hann skíðaði fyrstu ferð niður í seinni ferð. Hann var afar öruggur í seinni ferð sinni og vann sig upp um 5. sæti þar. Aðeins einn annar keppandi vann sig upp um fleiri sæti í seinni ferðinni. Jón Erik var með rásnúmer 47 og vann sig því sig í raun upp um 25 sæti alls. Hér má sjá seinni ferð Jóns. Jón Erik Sigurðsson endaði í 25. sæti í svigi á Vetrarólympíuleikunum. Þetta er besti árangur Íslendings í svigi frá því að Björgvin Björgvinsson varð í 22. sæti á ÓL 2006. Fyrri ferð : 1:04,51. Seinni ferð: 1:01,12. Alls var hann 12,02 sekúndum á eftir fremsta manni. Besti árangur í 20 ár Jón Erik náði því besta árangri Íslendings í 20 ár en Björgvin Björgvinsson varð í 22. sæti í svigi á Ólympíuleikunum í Torino 2006. Kristinn Björnsson varð í 21. sæti á Ólympíuleikunum í Salt Lake City 2022. Norðmaðurinn brjálaðist Norðmaðurinn Atle Lie McGrath átti tækifæri á að næla í gull en klúðraði seinni ferð sinni. McGrath krækti í hliðið beint fyrir framan þjálfarateymi helsta andstæðings síns, Meillard. Hann var vægast sagt ósáttur eftir að hafa dottið úr leik og fleygði stöfum sínum út í skóg. McGrath labbaði út í skóg og sat þar eftir drykklanga stund. „Hann brotnar undir pressunni. Hann fleygir stöfunum út í skóg.“ Svisslendingurinn Loic Meillard tók því gull á 1:53,61 og eftir honum komu Austurríkismaðurinn Fabio Gstrein og Norðmaðurinn Henrik Kristoffersen.