Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Jón Erik: „Þetta er bara Guð að senda manni skilaboð“

Read Full Article →

Jón Erik Sigurðsson var afar sáttur með dagsverk sitt en hann varð í 25. sæti í svigi á Vetrarólympíuleikum. Um tíma leit út fyrir að hann yrði í 31. sæti eftir fyrri ferð dagsins en það fór að lokum svo að hann varð í 30. sæti. Því ræsti hann fyrstur út í seinni ferðinni og var um tíma í efsta sæti. Jón náði besta árangri Íslendings á alpagreinum á leikunum í 20 ár. Hann vann sig upp um fimm sæti í seinni ferðinni en færð var erfið í fyrri ferðinni og um helmingur keppenda datt. Maður á alltaf að keyra allt í botn Jón Erik sagði í viðtali eftir fyrri keppni sína á leikunum að hann væri þannig gerður að hann færi alltaf á fullri ferð. Þá datt hann en nú kláraði hann báðar ferðir vel. „Tilfinningin er mjög góð. „Fyrri ferðin var erfið og ég er ekki nógu sáttur með fyrri ferðina. Líka eftir að hafa sagt að maður eigi alltaf að keyra allt í botn og svo gerði ég það alls ekki. En mér fannst ég ná að gera það í seinni ferðinni.“ Hvað fór í gegnum huga Jóns eftir að ljóst var að hann var í 30. sæti eftir fyrstu ferðina? Um tíma leit út fyrir að hann væri fastur í 31. sæti og færi því út með seinni hópnum að fyrstu 30 keppendum loknum. „Þetta er bara Guð að senda manni skilaboð, að gefa manni aukin tækifæri. Ég veit það ekki. Ég fékk þetta tækifæri og mér fannst ég ná að nýta það vel. Ég er mjög þakklátur fyrir það og veit ekki hvað ég á að segja. Ég er orðlaus.“ Viðtalið má sjá hér að neðan en Brynja Þorsteinsdóttir afreksstjóri Skíðasambandsins ræddi við hann fyrir hönd RÚV. Jón Erik Sigurðsson var hæstánægður með árangur dagsins en hann varð í 25. sæti á svigi á Vetrarólýmpíuleikum. Hann ræddi rússíbanasveiflur dagsins en margir keppendur duttu út í fyrstu ferð og Jón var afar öruggur í báðum ferðum. Hálfgerður snjóbylur Yfir helmingur keppenda náði ekki að klára fyrri ferðina sem var í hálfgerðum snjóbyl. „Það var ótrúlega mikið af „tricksum“ í brautinni sem voru að ná mönnum út. Aðstæður voru allt í lagi en það voru þröngar nálar eins og eitthvað bull sem einhver þjálfari ákvað að leggja og það henti öllum mönnum út.“ Hverju breytti hann frá fyrri ferðinni yfir í þá seinni? „Ég hikaði ekki og gaf allt í botn, eins og ég segi að maður eigi alltaf að gera. Maður á alltaf að skíða með allt í botni. Ég sýndi hvað það er gaman að skíða með allt í botni og hvað það er leiðinlegt að skíða ekki með allt í botni. Það sannaði sig þarna.“ Draumur að rætast Jón var um tíma í sigursætinu enda fyrstur niður og því í fyrsta sæti í dágóða stund. „Þetta var draumur að rætast, þegar maður sat í stólnum. Það er bara þakklæti og ég er orðlaus. Öll vinnan komin til skila og allt það.“ Hvað tekur hann úr deginum? „Maður á alltaf að keyra allt í botni annars er ekkert gaman að skíða. Lofaði flugeldasýningu Jón er mikill stemningsmaður og talaði mikið við sjálfan sig fyrir og eftir ferðir dagsins. Hann tók örstutt dansspor í lok viðtalsins. „Ég var búinn að lofa flugeldasýningu og ég tek sama dans og á opnunarhátíðinni. Ég held að ég hafi náð að gera flugeldasýningu og tók stemningu í markinu. Ég held að fólk sé bara ánægt með þetta,“ sagði hann að lokum.

Share this article