Jón Erik Sigurðsson keppti í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum í dag þar sem hann náði ekki að klára seinni ferðina eftir góða fyrri ferð um morguninn. Hann keppir næst í svigi á mánudag og það er hans sterkasta grein. „Bara, takk fyrir að fylgjast með og fylgist með sviginu líka. Við ætlum að reyna að henda í flugeldasýningu þar,“ sagði Jón Erik sem er að keppa á sínum fyrstu Ólympíuleikum. „Tilfinningin í startinu var bara geggjuð og það var mikil spenna.“ Jón Erik Sigurðsson bar sig mjög vel þrátt fyrir að hafa dottið í brautinni í seinni ferð sinni í stórsvigi á Ólympíuleikunum í dag. Hann stefnir á að bjóða upp á „flugeldasýningu“ í svigi á mánudaginn. Jón Erik var 45. í rásröðinni í Bormio og kom 38. í mark af 77 keppendum í fyrri ferðinni. „Ég var mjög sáttur með fyrri ferðina. Efri parturinn var svolítið hægur en svo komst ég í gang í lokin.“ Eftir flotta fyrri ferð reyndust brautaraðstæður erfiðar í þeirri seinni. Hitinn í Bormio hafði töluverð áhrif á brautina sem var orðin þung og erfið þegar Jón Erik fór seinni ferðina. Hann rann ofarlega í brekkunni og fór út úr brautinni og gat því ekki klárað keppni. Lélegt skyggni en færið upp á tíu „Svo klikkaði þetta á miðjukaflanum. Það var ekkert extra erfitt, kannski bara snjókoman í seinni ferðinni, það var lélegra skyggni en færið var upp á tíu. Maður á alltaf að keyra allt í botni sama hvað. Mér fannst ég ná að keyra mig vel í gang. Það er bara geggjað að vita að maður getur alveg skíðað í svona brautum. Ég held að það sé aðalreynslan sem ég tek út úr þessu.“