- What: Standardized tests are being reintroduced for elementary school students in Iceland after technical issues caused their cancellation in 2021.
- Impact: Students in grades 4-10 will be tested in reading comprehension and mathematics to monitor their academic progress.
Samræmd próf hafa ekki verið lögð fyrir grunnskólanema frá því að tæknileg vandamál komu upp við fyrirlagningu samræmdu könnunaprófanna árið 2021 og prófin voru slegin af. Nú verður breyting á. Svokölluð stöðu og framvindupróf verða lögð fyrir nemendur í þremur árgöngum hið minnsta. Prófað verður í lesskilningi og stærðfræði og verða prófin lögð fyrir frá 2. mars til 27. mars. Nákvæmleg tímasetning er undir hverjum grunnskóla komið. Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, segir að prófin séu kölluð stöðu og framvindupróf þar sem það verði hægt að leggja þau fyrir börn á hverju ári frá 4. upp í 10. bekk. Það sé skylda að leggja prófin fyrir þrisvar á skólagöngu barns en þau séu líka í boði hin árin. Þórdís Jóna segir að mikil áhersla sé lögð á að fylgjast með námsframvindu barna og því sé mikilvægt að prófa árlega. Stóri tilgangurinn með prófunum sé bættur námsárangur og hann náist ekki án vandaðra mælitækja bendir Þórdís Jóna á. Prófin hafi þannig tvö meginmarkmið, að tryggja heildstæða og skýra sýn á stöðu barnsins í námi og hins vegar að afla upplýsinga um stöðu skólakerfisins í heild. Prófin séu hönnuð þannig að auðvelt sé að bregðast við ef barn þarf aukinn stuðning. Prófin verða ekki lögð fyrir á sama tíma hjá öllum nemendum í hverjum árgangi eins og venjan var. „Við viljum hafa þetta sem hluta af námi barna, “ segir Þórdís Jóna. „Prófaglugginn er fjórar vikur þannig að þá getur kennari ákveðið hvenær er best. Það þarf ekki að læra sérstaklega fyrir þessi próf þannig að þetta er gert til þess að þetta sé sem eðlilegast.“