Innlent | mbl | 19.2.2026 | 23:55 Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Inga Sæland segir ekki raunhæft að prófa úr öllum hæfniviðmiðum aðalnámskrárinnar. Matsferill sé aðeins eitt verkfæri innan heildstæðs námsmats í kennslustofunum. mbl.is/Eyþór Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins sagði Matsferilinn, sem verður lagður fyrir nemendur í öllum grunnskólum landsins í vor, vera úlf í sauðargæru. Um væri að ræða stöðu- og framvindupróf en ekki samræmd próf. Ríkisstjórnin væri að haka í pólitískt hólf með innleiðingu hans, en að þónokkuð vanti upp á til að prófin geti talist samræmd. Þá prófaði Matsferillinn aðeins úr hluta hæfniviðmiða sem finna mætti í aðalnámskrá. Þetta kom fram í máli hans á Alþingi í gær. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, svaraði þingmanninum og sagði ekki raunhæft að prófa úr öllum hæfniviðmiðum aðalnámskrárinnar. Matsferill væri aðeins eitt verkfæri innan heildstæðs námsmats í kennslustofunum. Þá vakti athygli að hún tók þó undir með þingmanninum og sagði Matsferilinn ekki vera samræmd próf. Í tilkynningum ráðuneytisins hefur þó skyldubundni hluti þessa nýja námsmats, sem verður lagt fyrir þrjá árganga í öllum grunnskólum, þó ítrekað verið kallaður „ samræmd próf“ . „Matsferillinn, sem hér er um – við erum ekki að tala um samræmd próf. Þetta er af allt öðrum meiði. Þetta er í rauninni til þess að reyna að finna það út hvar barnið þitt stendur þegar það er í 4. bekk, hvar stendur barnið þitt nákvæmlega í náminu hvar lýtur að stærðfræði, hvar er það sem við getum gripið inn í og lyft barninu upp ef það er í vandræðum einhvers staðar í einhverju fagi í menntuninni sinni. Það er í rauninni annars eðlis heldur en samræmdu prófin okkar.“ Frétt af mbl.is Segja vafasamt að fullyrða um samræmt námsmat Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Karítas Ekkert af þessu er uppfyllt Í pontu vitnaði Jón Pétur í lög um matsferil þar sem segir að tilgangur skyldubundins samræmds námsmats sé að veita samanburðarhæfar upplýsingar um námsárangur. „En til að geta borið saman upplýsingar þá eru ákveðnar kröfur sem þurfa að vera til staðar,“ sagði þingmaðurinn. „Að prófið sé tekið við eins aðstæður, á sama tíma og óháðir aðilar fylgist með próftöku. En ekkert af þessu er uppfyllt.“ Frétt af mbl.is Hafði ekki hugmynd um að sömu prófin yrðu notuð Ótal viðmið verða útundan Jón Pétur benti á að skólar hefðu fjögurra vikna glugga til að leggja Matsferilinn fyrir, aðstæður nemenda gætu verið gjörólíkar við prófatöku og að ekkert ytra eftirlit væri viðhaft á meðan. „Að auki prófar matsferill aðeins úr völdum hæfniviðmiðum, þar sem ótal viðmið verða útundan, ótal viðmið – og réttmæti prófsins rýrist sem því nemur. Prófin verða svo gott sem eins ár eftir ár, eins og hraðlestrarprófin sem fólk þekkir.“ Þá væri hætta á að foreldrar geti fengið prófin í hendurnar, og vísaði þar til úrskurðar úrskurðarnefndar upplýsingamála. Það þýddi að prófabankinn myndi opnast. „Þetta eru prófin sem eiga að bera saman nemendur, skóla, kerfi og sveitarfélög,“ sagði Jón Pétur. Frétt af mbl.is Þetta á að koma í stað samræmdu prófanna Spyr hvaða viðmið verði notuð „Það skiptir skólana miklu máli að fá að vita úr hverju er prófað í matsferli, það er talað um valin hæfniviðmið. Og mín spurning til ráðherra er, hvaða hæfniviðmið eru það sem verða prófuð?“ Hann sagði Matsferilinn aðeins vera stöðu- og framvindupróf sem væri þó ætlað að gegna hlutverki samræmdsprófs, sem hann væri alls ekki. „Til að geta hakað í pólitískt hólf um að hér séu samræmd próf að bresta á.“ Frétt af mbl.is Vilja samræmd próf eins og áður tíðkuðust „Hvorki raunhæft né faglega skynsamlegt “ Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, svaraði og sagði Matsferilinn „byggja beint á hæfniviðmiðum aðalnámskrár grunnskólanna“. „Stöðu- og framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði ná þó ekki yfir öll hæfniviðmið námskrárinnar, það væri hvorki raunhæft né faglega skynsamlegt í stöðluðu stafrænu prófi,“ sagði Inga. „Sum viðmið eru þess eðlis að að þau eru best metin með fjölbreyttum kennsluháttum og daglegu mati í kennslustofunni.“ Þannig væri Matsferill aðeins eitt verkfæri innan heildstæðs námsmats. „Prófin í lesskilningi byggja á þremur skýrum hæfniþrepum,“ sagði Inga enn fremur og þuldi þau svo upp. Frétt af mbl.is Ekkert komið í stað prófanna Vill ræða við Jón Pétur Þá ítrekaði hún vilja sinn að ræða við Jón Pétur um menntamál, eins og hún hafði áður lýst í pontu Alþingis, enda hefði hann mikinn metnað fyrir þessum málaflokki eins og hún. Hún tók fram að Matsferill og samræmd próf væru af all öðrum meiði. Matsferillinn væri frekar hugsaður til þess að styðja börn og sjá hvar hægt væri að grípa inn í til að styðja þau betur í námi. „Svo er það önnur spurning, hvort að við lítum til þeirra, og við háttvirtur þingmaður eigum örugglega eftir að taka það samtal einnig – hvernig ætlum við að meta börnin okkar eftir til dæmis tíu ára grunnskólanám. Spurning er nákvæmlega um það hvort við eigum að líta til hinna svokölluðu samræmduprófa sem tekin eru á sama tíma um land allt og hvort að það eigi að vera mælikvarðinn. Ég ætla að leggja enn ríkari áherlsu á að vinna með PISA-kannanirnar okkar sem dæmi. Þannig það er í mörg horn að líta.“ Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Myndskeið: Trump segir Obama hafa kjaftað frá Myndi virkja um 200 metra fall Stórt kvöld fyrir Manchester United Bjartari tímar fram undan Til hamingju Framsókn Fleira áhugavert Gæti snjóað lítillega á höfuðborgarsvæðinu Verra en árið 1992 Hæddist að Dönum og Grænlendingum á hitafundi Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Myndskeið: Trump segir Obama hafa kjaftað frá Myndi virkja um 200 metra fall Stórt kvöld fyrir Manchester United Bjartari tímar fram undan Til hamingju Framsókn Fleira áhugavert Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Gæti snjóað lítillega á höfuðborgarsvæðinu „Það var bara allt á floti“ Hæddist að Dönum og Grænlendingum á hitafundi „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum