- What: High levels of particulate matter (dust) are being measured in the Reykjavik capital area.
- Impact: The dust is caused by traffic and dry road conditions, and is exceeding health limits.
Styrkur svifryks á höfuðborgarsvæðinu mælist hár. Á hádegi var gildið fyrir gróft svifryk 178,9 míkrógrömm á rúmmetra í mælistöðinni við Grensásveg, til samanburðar eru sólarhringsheilsuverndarmörkin 50 míkrógrömm á rúmmetra. Klukkan 14 mældist gróft svifryk 216,0 míkrógrömm á rúmmetra. Svifrykið er frá umferð. Vegna þess hve þurrar göturnar eru og hægur vindurinn er þá þyrlast það frekar upp. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að ekki sé unnt að beita rykbindingu þar sem efni til þess kemur ekki fyrr en í vikulok. Búist er við úrkomu næstu daga sem dregur að öllum líkindum úr rykinu en fólk er hvatt til þess að fylgjast með gildum hér . Staðan klukkan 14:30.Umhverfisstofnun / Loftgæði.is