Mikil svifryksmengun mælist nú á höfuðborgarsvæðinu og hefur verið í allan dag. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur í loftmengun á Umhverfisstofnun, segir vegryk hafa náð að þyrlast upp næst stofnbrautum vegna mikillar umferðar. „Þetta er fyrst og fremst ryk frá yfirborði sem nær að þyrlast upp út af veðuraðstæðum, það er hægviðri þannig mengunin berst ekki hratt í burtu, það er lágt rakastig þannig göturnar eru þurrar, og þetta eru svona kjöraðstæður fyrir svifryksmengun frá yfirborðinu sem er þá aðallega bara slitið malbik,“ segir Þorsteinn. Einhver hækkun hafi einnig verið á niturdíoxíði sem kemur einnig frá umferðinni og safnast upp í hægviðri. Mengunin sé minni í úthverfum Næstu daga er breytt veðurspá og segir Þorsteinn að því séu allar líkur á að ekki þurfi að hafa áhyggjur af loftmenguninni. Göturnar þurfi að vera þurrar til að svifryk mælist eins mikið og það gerði í dag. Þeir sem eru viðkvæmir í öndunarfærum ættu að fara varlega í dag og sömuleiðis hlauparar. „Við erum nú oft að segja að þetta eru kannski ekki kjöraðstæður endilega til að fara út að hlaupa, allavega ekki meðfram miklum umferðargötum.“ Hann segir mengunina vera víða en hún sé þó minni í úthverfum, nokkuð hundruð metra frá stóru götunum. Hægt er að fylgjast með loftgæðum hverju sinni á vefsíðu Umhverfisstofnunar.