- What: A man in Sweden is suspected of facilitating the purchase of prostitution from a woman by over 100 men.
- Impact: The man is accused of organizing and profiting from the prostitution, while the men are accused of violating the woman.
Karlmaður hefur verið í haldi í Svíþjóð síðan í haust, grunaður um að hafa haft milligöngu um kaup yfir 100 manna á vændi af henni. Saksóknari hefur ekki gefið upp hvort konan hafi verið neydd til vændis. Samkvæmt frétt SVT, sænska ríkissjónvarpsins , var það konan sjálf sem kærði brotin, sem framin voru yfir rúmlega þriggja ára tímabil. Í Svíþjóð er bannað að kaupa vændi en ekki að selja það. Saksóknari í málinu segir að maðurinn sé grunaður um að hafa skipulagt vændi og hagnast á því. Lögregla sé að rannsaka hvort glæpirnir séu fleiri en hefur ekkert gefið nánar upp um það. Upphaflega stóð til að 30 karlar yrðu kallaðir fyrir dóm vegna aðildar að málinu. SVT hefur heimildir fyrir því að um 120 karlar, búsettir víðs vegar um Svíþjóð, hafi brotið á konunni að undirlagi eiginmannsins. Þeir komust í kynni við hann í gegnum auglýsingar á netinu. Eiginmaðurinn neitar sök. Hjónin bjuggu í Ångermanland. Konan hefur lýst því í yfirheyrslum að hún hafi stundum verið undir áhrifum áfengis og fíkniefna og muni því ekki skýrt eftir málsatvikum. Nina Larsson, ráðherra jafnréttismála í Svíþjóð, segir málið minna á Pelicot-málið í Frakklandi. Í því máli byrlaði maður eiginkonu sinni lyf og gaf körlum leyfi til að nauðga henni. „Karlar ættu að hætta að kaupa og selja líkama kvenna. Fréttir um sænska Pelicot-málið eru hneykslanlegar og ógeðfelldar,“ skrifaði hún á samfélagsmiðilinn X . Maðurinn var til rannsóknar hjá lögreglu fyrir tveimur árum, grunaður um að hafa ráðist á eiginkonu sína. Rannsókn á því var felld niður. Hann hefur áður hlotið dóma, meðal annars fyrir líkamsárás og brot á vopnalögum. Þá er mál fyrir dómstólum gegn manninum þar sem hann er grunaður um alvarleg fjársvik. Ríkisstjórn Svíþjóðar hefur hert dóma í kynferðisbrotamálum. Larsson ætlar í vor að leggja fram aðgerðaáætlun til að draga úr vændi og mansali.