Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Leiðin að HM: Tveir nýliðar frá Íslandsmeisturunum í landsliðshópinn

  • What: The Icelandic women's national football team has announced its squad for the upcoming 2027 World Cup qualifying matches against England and Spain.
  • Impact: Two new players from the Icelandic champions, Breiðablik, have been selected for the national team.
Read Full Article →

Þorsteinn Halldórsson hefur opinberað landsliðshóp sinn fyrir verkefni kvennalandsliðsins í fótbolta. Liðið mætir Englandi og Spáni ytra í fyrstu leikjum sínum í undankeppni HM 2027 sem fer fram í Brasilíu. Birta Georgsdóttir og Elín Helena Karlsdóttir eru nýliðar í hópnum en þær urðu Íslands- og bikarmeistarar með Breiðablik síðasta sumar. Birta var valin sú besta í Besta deildinni á síðasta ári er hún skoraði átján mörk. Hún var seld til Genúa í efstu deild Ítalíu en Elín leikur með Breiðablik. Elín og Berglind Rós Ágústsdóttir eru einu leikmennirnir úr Bestu deildinni. Hvenær eru leikirnir? Ísland mætir Spáni þriðjudaginn 3. mars og Englandi laugardaginn 7. mars. RÚV sýnir báða leikina. Hvernig virkar undankeppnin? Ísland er í A deild undankeppni Evrópu fyrir HM og er í afar sterkum riðli með Englandi, Spáni og Úkraínu. Liðið í efsta sæti fer beint inn á mótið en hin þrjú liðin fara í gegnum umspilsleið. Riðillinn er leikinn frá febrúar til júní 2026. Liðið sem endar í 4. sæti fer í umspil en fellur hins vegar í B-deild undankeppninnar fyrir næsta stórmót. Leiðin inn á stórmót er mun erfiðari í gegnum B-deild. Evrópa fær alls 11 sæti á HM og eitt sæti ræðst af umspili milli heimsálfa. Liðin í öðru og þriðja sæti fara í gegnum umspil þar sem leikið verður heima og heiman. Þau mæta lakari andstæðingum úr C-deild í leið 1 en liðið í 4. sæti mætir sterkustu andstæðingunum í B-deild í gegnum leið 2. Dregið verður um mótherja og leikið verður í október 2026. Sigurvegararnir úr viðureignunum í leið 1 og leið 2 mætast svo í úrslitaviðureign heima og heima í átta viðureignum um sjö laus sæti. Lakasta liðið í undankeppninni samkvæmt röðun fer í umspil milli heimsálfa en sterkustu sjö liðin fara beint inn á HM. Einfalda útgáfan er því þannig að Ísland þyrfti að forðast fjórða sætið eins og heitan eldinn. En fari það svo að stelpurnar lendi í 2. eða 3. sæti eru fram undan fjórir umspilsleikir heima og heima ef liðið ætlar sér á HM.

Share this article