Ísland mætir Spáni í dag í undankeppni HM 2027 í Brasilíu. Þetta er fyrsti leikur liðanna og fer hann fram á Spáni. Spánn er ríkjandi heims- og Evrópumeistari. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og er sýndur á RÚV. Stofan hefst klukkan 17:20 og verður einnig að leik loknum. Stofan eftir leik verður á RÚV 2. Ísland er í riðli með Spáni, Englandi og Úkraínu. Efsta liðið fer beint á HM en hin þrjú fara í varaleið. Hvernig virkar undankeppnin? Ísland er í A-deild undankeppni Evrópu fyrir HM og er í afar sterkum riðli með Englandi, Spáni og Úkraínu. Liðið í efsta sæti fer beint inn á mótið en hin þrjú liðin fara í gegnum umspilsleið. Riðillinn er leikinn frá febrúar til júní 2026. Liðið sem endar í 4. sæti fer í umspil en fellur hins vegar í B-deild undankeppninnar fyrir næsta stórmót. Leiðin inn á stórmót er mun erfiðari í gegnum B-deild. Evrópa fær alls 11 sæti á HM og eitt sæti ræðst af umspili milli heimsálfa. Liðin í öðru og þriðja sæti fara í gegnum umspil þar sem leikið verður heima og heiman. Þau mæta lakari andstæðingum úr C-deild í leið 1 en liðið í 4. sæti mætir sterkustu andstæðingunum í B-deild í gegnum leið 2. Dregið verður um mótherja og leikið verður í október 2026. Sigurvegararnir úr viðureignunum í leið 1 og leið 2 mætast svo í úrslitaviðureign heima og heima í átta viðureignum um sjö laus sæti. Lakasta liðið í undankeppninni samkvæmt röðun fer í umspil milli heimsálfa en sterkustu sjö liðin fara beint inn á HM. Einfalda útgáfan er því þannig að Ísland þyrfti að forðast fjórða sætið eins og heitan eldinn. En fari það svo að stelpurnar lendi í 2. eða 3. sæti eru fram undan fjórir umspilsleikir heima og heima ef liðið ætlar sér á HM.