Innlent | mbl | 16.2.2026 | 19:20 Ingu „gjörsamlega misboðið“ Inga Sæland, formaður Flokks fólksins. mbl.is/Karítas „Ég segi skömm þeim sem ætla að koma svona fram við fátækasta fólkið í landinu,“ sagði Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, á Alþingi í dag er önnur umræða var tekin um breytingu á lögum um almannatryggingar. Greitt var atkvæði um nefndarálit 1. minnihluta velferðarnefndar sem hafði lagt til að málinu yrði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar en var sú tillaga felld. Kusu 20 þingmenn með því að málinu yrði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar en 32 gegn því. 11 voru fjarstaddir. Þá voru greidd atkvæði um breytingar á 1. og 2. grein laganna um almannatryggingar og voru báðar greinarnar samþykktar. Kusu 32 þingmenn með breytingunum, 11 kusu nei og 8 sátu hjá. Frétt af mbl.is Kristrún segir gagnrýnina byggða á misskilningi Hlegið að Guðrúnu Margir þingmenn tóku til máls í dag í umræðunni. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði flokkinn leggjast alfarið gegn samþykkt málsins sem hún sagði geta aukið verðbólgu og dregið úr atvinnuþátttöku. Benti hún jafnframt á þær gagnrýnisraddir sem frumvarpið hefur fengið úr ýmsum áttum, t.a.m. frá Seðlabanka Íslands, ASÍ, SA, og Viðskiptaráði Íslands. „Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn sem raunverulega stendur vörð um hagsmuni eldra fólks og öryrkja,“ sagði formaðurinn en þau orð vöktu þó mikla kátínu einhverra þingmanna í sal sem brugðust við með hlátri. Frétt af mbl.is Vandræðagangur bótafrumvarps Formaður velferðarnefndar vísar gagnrýnisröddum á bug Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hafnaði dómsdagsspám stjórnarandstöðunnar og sagði það óheiðarlegt af Guðrúnu að taka ekki tillit til þess að þær gagnrýnisraddir sem hún vísaði til væru á misskilningi byggðar. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins og formaður velferðarnefndar, vísaði gagnrýnisröddum ASÍ, SA og fleiri, um að óráðlegt væri að tengja launavísitölu við elli- og örorkubætur, á bug er hún tók til máls. „Allar hækkanir kunna að valda verðbólguþrýstingi svo það eru ekki rök fyrir því að gera ekki neitt fyrir þennan hóp í samfélaginu sem setið hefur eftir. Ef einhver hópur hreyfir við vísitölunni eru það hópar í efri lögum samfélagsins. Þeirra launahækkanir eru, eins og við þekkjum oft, stærðfræðilega miklar,“ sagði Kolbrún. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, sagði að nú væri ríkisstjórn komin til valda sem stæði með eftirlaunafólki og öryrkjum. Það væri eitthvað sem stjórnarandstaðan þyrfti að fara að sætta sig við. Frétt af mbl.is Ríkisstjórnin hafði ekkert samráð við Seðlabankann Frétt af mbl.is Ekki er hlustað á varúðarorð Ingu misboðið Eins og fyrr segir var haldin atkvæðagreiðsla um frávísunartillögu 1. minnihluta velferðarnefndar og var sú tillaga felld með meirihluta og tók Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, til máls skömmu eftir atkvæðagreiðsluna. „Að sjálfsögðu er ég á eldrauðum takka við þessari frávísun. Hér er ég í níu ár búin að berjast fyrir þessu frábæra máli sem komið er fyrir í dag. Í níu ár, jafnlengi og ég barðist fyrir því að hér yrði lögfestur samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hvurslags aðför er þetta hér á hinu háa Alþingi af ákveðnum stjórnmálaflokkum gegn fátækasta fólkinu í landinu? Mér er gjörsamlega misboðið, algerlega misboðið. Hér eru dregnar fram alls konar furðusviðsmyndir sem reyna að draga það fram að hér ætlum við bara að sökkva þjóðarskútunni ef við lyftum upp fátækasta fólkinu í landinu“ „Ég segi skömm þeim sem ætla að koma svona fram við fátækasta fólkið í landinu,“ sagði formaðurinn. Frumvarpið mun nú ganga til velferðarnefndarinnar og þriðju umræðu. Ingu „gjörsamlega misboðið“ Entist í 33 daga hjá Tottenham Mikael Torfason og Stefanía Berndsen fylltu bíóið Gekk í hjónaband á rómantískasta degi ársins Liverpool mætir botnliðinu – Hollywood og Chelsea Góðar sögur eru sígildar Það er skýrt, borgarlína er óþörf Fleira áhugavert Úkraínumenn fólk, ekki „tortímendur“ Hvetja íslensk stjórnvöld til dáða Telur andstöðu við friðlýsingu ekki skaða samstarf Líkamsárásirnar tvær líklega ótengdar Dregur framboð sitt til baka Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Allt að 18 stiga frost í dag Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Ökumaður kærður fyrir svigakstur Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fær rúmar 45 milljónir í vasann 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Ingu „gjörsamlega misboðið“ Entist í 33 daga hjá Tottenham Mikael Torfason og Stefanía Berndsen fylltu bíóið Gekk í hjónaband á rómantískasta degi ársins Liverpool mætir botnliðinu – Hollywood og Chelsea Góðar sögur eru sígildar Það er skýrt, borgarlína er óþörf Fleira áhugavert „Það er aldrei of seint“: FBI rannsakar hanska Líkamsárásirnar tvær líklega ótengdar Lögreglan sökuð um misferli í morðmáli Hvetja íslensk stjórnvöld til dáða Dregur framboð sitt til baka Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Allt að 18 stiga frost í dag Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Ökumaður kærður fyrir svigakstur Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fær rúmar 45 milljónir í vasann 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri