Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hvassviðri og snjókoma sunnantil í kvöld

  • What: Weather forecast for Iceland predicts strong winds and snowfall in the southern part of the country.
  • Impact: Residents in the western part of Iceland should expect increasing winds, and the southern part of the country will experience snowfall.
Read Full Article →

Íbúar vestast á landinu mega eiga von á vaxandi hvassviðri í dag og síðdegis fer að snjóa um sunnanvert landið. Öllu hægara verður norðantil þar sem útlit er fyrir hæga norðlæga átt og smáél við norðurströndina. Frost verður allt að átján stig, sem fyrr kaldast inn til landsins, en allra syðst verður líklega frostlaust í kvöld. Veðurspáin er svohljóðandi: Vaxandi austanátt vestast og fer að snjóa um landið sunnanvert síðdegis, þrettán til tuttugu metrar á sekúndu og snjókoma sunnantil í kvöld. Hæg norðlæg átt og smáél við norðurströndina. Frost 3 til 18 stig, kaldast inn til landsins. Frostlaust allra syðst í kvöld. Norðaustlægari á morgun og dregur úr vindi og ofankomu, en snjókoma fyrir norðan annað kvöld. Minnkandi frost.

Share this article