- What: Authorities are planning a search operation for a man believed to have fallen into a fissure in Grindavík in January 2024.
- Impact: The search aims to recover the body and provide closure for the family.
Vonir standa til að hægt verði að finna Lúðvík Pétursson sem talið er að hafi fallið í sprungu í Grindavík í janúar 2024. Grindavíkurnefnd hefur óskað eftir því við dómsmálaráðuneytið að óháður utanaðkomandi aðili verði fenginn til að meta aðstæður í sprungunni og ráðuneytið hefur samþykkt að greiða kostnað við slíka rannsókn. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag. Þar segir að ljósmyndir séu til af jarðvegsþjöppunni sem maðurinn var að vinna við ofan í sprungunni og að talið sé að hann sé þar nærri. Kanna á hvort að hægt sé að komast að staðnum og leita að manninum. Unnið er að sprungufyllingum í bænum og styttist í að farið verði þessa sprungu. Haft er eftir bróður Lúðvíks að fjölskyldan fagni þessu og telji ákaflega mikilvægt að grafið verði eftir honum. Fjölskyldan fái mögulega lúkningu með því að geta jarðað hann.