- What: An investigation is underway regarding the death of a worker in Grindavík during rescue efforts following a natural disaster.
- Impact: Five individuals have been designated as suspects in connection with the incident.
Innlent | Morgunblaðið | 17.2.2026 | 15:34 Fimm enn með réttarstöðu grunaðs Til stendur að gera mat á aðstæðum þar sem Lúðvík Pétursson féll í sprungu í Hópshverfi í Grindavík. mbl.is/Eggert Fimm eru með réttarstöðu grunaðs í tengslum við andlát Lúðvíks Péturssonar, sem lést við störf þegar unnið var að því að bjarga húsi í Hópshverfi í Grindavík 10. janúar árið 2024. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum rannsakaði slysið og hefur málið verið til meðferðar hjá héraðssaksóknara í um eitt ár. Í skýrslu Vinnueftirlitsins um slysið var sérstaklega gerð athugasemd við það að ekki hefði verið framkvæmt áhættumat á jarðfræðilegum aðstæðum á því svæði þar sem jörð gaf sig. Verkfræðistofan Efla tók að sér verkið að beiðni Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Í því fólst meðal annars að ráða verktaka og skipuleggja framkvæmdir. Greiðslur komu aftur á móti frá NTÍ. Dómsmálaráðuneytið hefur falið Grindavíkurnefnd að hafa umsjón með því að finna verktakafyrirtæki til að gera mat á því hvort unnt sé að gera frekari leit að Lúðvík. Hann er sagður hafa unnið á jarðvegsþjöppu þegar jarðvegur gaf sig með þeim afleiðingum að hann féll í sprungu. Björgunaraðgerðir báru ekki árangur og var leit hætt 12. janúar vegna hættulegra aðstæðna á slysstað. Frétt af mbl.is Vonast til að geta fundið Lúðvík Telja sig vita hvar þjappan er Nú telja menn sig vita hvar jarðvegsþjöppuna er að finna í sprungunni. Mun hún vera undir fargi sem erfitt er að komast að en vilji er til þess að gera tilraun til að kanna aðstæður betur. „Við höfum verið beðin um það af dómsmálaráðuneytinu að finna óháðan utanaðkomandi aðila til að gera matið,“ segir Árni Þór Sigurðsson formaður Grindavíkurnefndarinnar. Hann segir að nefndin sé í samtölum við verkfræðistofur sem séu vanar jarðvinnu og hafi getu til þess að reikna burðarþol og annað áður en gerð er tilraun til þess að fara í aðgerðir. „Það eru nokkrar verkfræðistofur sem hafa komið að málum í Grindavík en þær eru úr leik í þessu máli.“ Óskin um að gerð verði tilraun til þess að finna Lúðvík kemur frá aðstandendum hans. Árni segir að ráðast verði í þessa vinnu núna, ellegar verði það ógjörlegt. „Við erum að vinna eftir aðgerðaáætlun við sprungufyllingar í bænum. Þannig er mál með vexti að sprungan þar sem hann fer niður er að komast á framkvæmdastig. Við viljum hins vegar ekki fara í hana fyrr en búið er að gera úrslitatilraun til að kanna hvort hann finnist,“ segir Árni Þór. Hann segir að menn viti að stór jarðvegsbingur sé ofan í sprungunni og að sést hafi í þjöppuna þar. Hjá dómsmálaráðuneytinu fengust þær upplýsingar að ráðuneytið myndi greiða kostnað vegna matsins. „Þegar matið liggur fyrir verður það afhent embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum. Það er á forræði embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum að taka ákvörðun um hvort ráðist skuli í frekari leit og björgun,“ segir í skriflegu svari frá ráðuneytinu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Fær rosalega launahækkun Eitt mesta rúmmál sem mælst hefur frá 2023 Fresta tillögu um aðgerðir vegna svifryksmengunar Fimm enn með réttarstöðu grunaðs Úr Garðabænum til Þýskalands Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Besti árangur Íslendings í 20 ár Ásgeir og Þórarinn hafa áhyggjur af frumvarpinu Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Eitur sem ekki hefur verið notað áður Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan 180 milljónir króna í starfslokasamninga Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Grunaður dópsali gripinn eftir símtal undir stýri Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Fær rosalega launahækkun Eitt mesta rúmmál sem mælst hefur frá 2023 Fresta tillögu um aðgerðir vegna svifryksmengunar Fimm enn með réttarstöðu grunaðs Úr Garðabænum til Þýskalands Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Eitur sem ekki hefur verið notað áður Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Besti árangur Íslendings í 20 ár Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan 180 milljónir króna í starfslokasamninga Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Grunaður dópsali gripinn eftir símtal undir stýri Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum