- What: The director of Náttúruhamfaratrygginga Íslands (NTÍ) is under investigation following the death of a man in Grindavík.
- Impact: The investigation focuses on the responsibility of those who decided to assign the man to fill cracks at a house where he later died.
Innlent | Morgunblaðið | 21.2.2026 | 7:03 Forstjórinn með stöðu sakbornings Lóðin við Vesturhóp 29 í Grindavík þar sem stór sprunga opnaðist eftir jarðhræringarnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Forstjóri Náttúruhamfaratrygginga Íslands (NTÍ), Hulda Gunnarsdóttir, er meðal þeirra sem hafa réttarstöðu grunaðs í sakamáli sem héraðssaksóknari hefur nú til meðferðar vegna andláts Lúðvíks Péturssonar. Lúðvík lést 10. janúar 2024 þegar hann féll í sprungu við hús að Vesturhópi 29 í Grindavík. Auk forstjórans hafa annar starfsmaður NTÍ, tveir starfsmenn verkfræðistofunnar EFLU og starfsmaður verktakafyrirtækis sem Lúðvík starfaði hjá einnig réttarstöðu grunaðs. Lögreglurannsókn lauk fyrir um ári og var málið í framhaldinu sent héraðssaksóknara. Rannsóknin beindist að ábyrgð þeirra sem tóku ákvörðun um að fela Lúðvík að sinna sprungufyllingu við húsið. Enn fremur beindist rannsóknin að „ákvæði 215. greinar almennra hegningarlaga er varðar manndráp af gáleysi og einnig lögum um aðbúnað um hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum,“ var haft eftir Úlfari Lúðvíkssyni þegar rannsókn lauk. Frétt af mbl.is Rannsókn lokið í Grindavík: Fimm með stöðu sakbornings Óskin kom frá NTÍ Ósk um að ráðist yrði í sprungufyllingu við húsið kom frá NTÍ, sem hafði gert verktakasamning við EFLU. Samkvæmt gögnum sem Morgunblaðið hefur undir höndum var ákvörðunin um að fara í framkvæmdir við húsið tekin á innan við sólarhring 4.-5. desember 2023. Þá veitti húseigandi heimild fyrir því að fyllt yrði í gjótu á lóð hússins. Að því er kemur fram í skýrslu Vinnueftirlitsins var EFLU falið að meta hvort hægt væri að tryggja undirstöður hússins samhliða. EFLA fékk svo verktakafyrirtækið sem Lúðvík vann hjá til að framkvæma verkið. Ástæða framkvæmdanna var um tveggja kílómetra löng sprunga sem lá m.a. í gegnum lóð hússins. Nær þriðjungur hússins hafði losnað frá undirstöðum og var sökkull og hluti gafls í lausu lofti eftir jarðhræringar, þótt húsið virtist að öðru leyti heillegt. 28. nóvember 2023, eða um einum og hálfum mánuði fyrir slysið, lá fyrir skýrsla frá verkfræðistofunni VSÓ þar sem kom fram að viðgerðarkostnaður við að bjarga húsinu yrði meiri en að greiða út tryggingarfjárhæð. Með öðrum orðum taldi VSÓ húsið í raun ónýtt. NTÍ flokkaði húsið í framhaldinu sem „varasamt“ að því er kemur fram í skýrslu Vinnueftirlitsins. Húseigandinn segir í samtali við Morgunblaðið að hann hafi óskað eftir því við NTÍ að húsið yrði dæmt ónýtt vikurnar fyrir atburðinn. Hann veitti heimild fyrir sprungufyllingu í þágu öryggis gangandi vegfarenda á lóðinni en gerði ekki ráð fyrir að ráðist yrði í að þétta jarðveg undir húsinu sjálfu. „Við börðumst gegn því að farið væri í það að styrkja undirstöðurnar undir húsinu,“ segir húseigandinn. „Það var enginn að fara að búa í húsi þar sem sprunga hefur myndast undir. Við vildum að húsið yrði metið ónýtt en þeir (NTÍ) harðneituðu því vikum saman.“ Að sögn hans hafði hann á tilfinningunni að NTÍ vildi bjarga húsinu og þar með spara sér útgreiðslu tryggingafjár en það var aldrei sagt berum orðum. Fjórum dögum eftir að Lúðvík féll ofan í sprunguna fékk húseigandinn símtal frá NTÍ þar sem honum var tilkynnt að húsið yrði metið ónýtt. Samkvæmt upplýsingum þeirra sem unnu á svæðinu var á þeim tíma einungis notast við sjónrænt mat við að meta sprungur í jarðvegi þegar verktakar unnu í Grindavík eftir að jarðhræringar hófust. Eftir slysið var hins vegar tilkynnt um það á vef Vegagerðarinnar þann 19. janúar 2024 að til stæði að beita jarðsjá til að kanna betur holrými undir yfirborðinu eftir jarðhræringarnar. Fjölskyldan bíður lúkningar Í vikunni var greint frá því að dómsmálaráðuneytið hygðist fjármagna mat á því hvort unnt væri að ná jarðneskum leifum Lúðvíks úr sprungunni. Fram kom í máli Árna Þórs Sigurðssonar hjá Grindavíkurnefnd að tímabært væri að kanna málið, þar sem sprungan við húsið væri komin á framkvæmdastig. Fjölskylda Lúðvíks sagði af því tilefni að hún fagnaði því að skriður væri kominn á málið og að hún vildi lúkningu og að geta jarðað Lúðvík. Frétt af mbl.is Vonast til að geta fundið Lúðvík Var að klára verkið Lúðvík Pétursson var við það að klára verkið þegar hann féll í sprunguna. Samverkamaður var að ná í kaffi þegar atvikið varð. Í skýrslu Vinnueftirlitsins er sérstaklega gerð athugasemd við að ekki hafi verið framkvæmt áhættumat fyrir verkið. Starfsmaður EFLU sagði að hvergi hefði verið farið í áhættumat fyrir aðgerðir í Grindavík. Ábyrgðarkeðjan í Grindavík Ábyrgðarkeðjan í Grindavík var þannig að almannavarnir báru ábyrgð á öryggi í bænum. Almannavörnum hafði verið tilkynnt um það af NTÍ í lok nóvember 2023 að aðstæður við húsið væru varasamar. Í skýrslu Vinnueftirlitsins er gagnrýnt að ekki hafi verið farið í áhættumat áður en farið var í sprungufyllingu og reynt að styrkja stoðir hússins. Starfsmaður EFLU sagði hins vegar í samtali við mbl.is í nóvember 2024 að ekki hefði verið farið í áhættumat fyrir neitt verk í Grindavík fram að slysinu. Lítið hefur farið fyrir umræðu um ábyrgð almannavarna. Í þessu samhengi er þó vert að benda á að gríðarlegir hagsmunir voru undir og allir lögðust á eitt um að bjarga verðmætum í erfiðum aðstæðum. Þó er eftirtektarvert að fyrir Alþingi liggur nýtt frumvarp um almannavarnir þar sem marka á „skýra umgjörð um skyldur, verkaskiptingu og ábyrgð á hættustundu og setja viðmið um það hvenær almannavörnum sleppir“, segir í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Andlát: Haraldur Sigurðsson Talinn vera undir mölinni Forstjórinn með stöðu sakbornings Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Sameinuð eftir sex ára fjarsamband Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Fleira áhugavert Verra en árið 1992 Talinn vera undir mölinni Framleiðslan sögð hefjast fyrr en áætlað var Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Sérstaða dönskunnar tímaskekkja Bjóða fjölskyldu milljónir fyrir neyðarheimili Sigríður og Jón Karl á Bessastaði Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Vilja að komugjöld í viðhaldsmeðferð verði felld niður Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Netbilun olli truflununum Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? Guðlaugu lokað að beiðni Veitna Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Andlát: Haraldur Sigurðsson Talinn vera undir mölinni Forstjórinn með stöðu sakbornings Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Sameinuð eftir sex ára fjarsamband Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Fleira áhugavert Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Verra en árið 1992 Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Sérstaða dönskunnar tímaskekkja Bjóða fjölskyldu milljónir fyrir neyðarheimili Sigríður og Jón Karl á Bessastaði Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Vilja að komugjöld í viðhaldsmeðferð verði felld niður Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Netbilun olli truflununum Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? Guðlaugu lokað að beiðni Veitna Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat