Bræðurnir Gabríel Douane Boama og Anton Mario Boama voru í síðustu viku sakfelldir fyrir fólskulegar líkamsárásir. Anton hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm en Gabríel eins árs fangelsisrefsingu. Dómurinn var birtur í gær. Anton var sakfelldur fyrir tvær sérstaklega hættulegar líkamsárásir auk fleiri brota. Hann neitaði sök í líkamsárásunum en gekkst við öðrum ákæruliðum. Sannað þótti að hann hefði stungið mann í bakið þegar hann var fimmtán ára og slegið stúlku tvisvar í höfuðið þegar hann var sextán ára. Hann er nú átján ára. Bræðurnir voru báðir sakfelldir fyrir að berja og sparka ítrekað í höfuð og líkama þeirrar stúlku og annarrar sem reyndi að koma henni til aðstoðar. Dómarinn sagði að brotin væru fólskuleg og framin með hættulegri aðferð. Þriðji pilturinn var einnig sakfelldur og fékk hálfs árs skilorðsbundinn dóm fyrir aðild að ráni með yngri bróðurnum. Bræðurnir voru dæmdir til að greiða rúmar 11,5 milljónir í málsvarnarlaun verjenda sinna, þóknun réttargæslumanna stúlknanna sem þeir réðust á og annan sakarkostnað. Þar að auki eiga þeir að greiða þolendum samanlagt 2,8 milljónir í miskabætur.