Innlent | mbl | 10.2.2026 | 15:47 Stal úlpu, réðst á tvær konur og stakk pilt Dómur var kveðinn upp í gær en hefur ekki verið birtur. mbl.is/Ólafur Árdal Bræðurnir Gabríel og Anton Boama Douane hafa verið dæmdir í fangelsi fyrir líkamsárásir. Samkvæmt heimildum mbl.is fékk Anton tveggja og hálfs árs dóm en bróðir hans eins árs dóm. Dómur var kveðinn upp í málinu í gær en hefur enn ekki verið birtur. Anton var sakfelldur fyrir sérstaklega hættulegar árásir. Önnur þeirra var hnífstunguárás og hin líkamsárás. Gabríel tók þátt í líkamsárásinni og var dæmdur til fangelsisvistar. Samkvæmt heimildum mbl.is voru fleiri ákærur sameinaðar fyrir dómi. mbl.is hefur eina ákæru undir höndum. Þar er Anton ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, fyrir að hafa veist að öðrum dreng og stungið hann með hníf í hægra mjóbak. Hnífsblaðið náði inn í rými þar sem milta og nýra eru staðsett og olli blæðingu umhverfis þessi líffæri. Atvikið átti sér stað í Grafarvogi árið 2022 en þá var Anton fimmtán ára gamall. Kastaði glerflöskum og diskum Þá var Anton einnig ákærður fyrir rán og sérstaklega hættulega líkamsárás fyrir að hafa klætt sig í úlpu í eigu konu á þrítugsaldri og slegið hana í höfuðið þegar hún reyndi að fá úlpuna sína til baka. Þá skarst önnur kona í leikinn og reyndi að aðstoða konuna að fá úlpuna sína til baka. Þá réðust Anton og Gabríel að konunum, veittu þeim ítrekuð högg og spörk í höfuðið og líkama og köstuðu nærliggjandi lausamunum í þær, m.a. glerflöskum og diskum. Anton hótaði konunum einnig lífláti. Í ákærunni segir að með háttseminni hafi Anton neytt úlpuna út úr konunni og komist undan. Konan sem átti úlpuna fékk áverka á höfði, olnboga, fótlegg og sár á fæti. Konan sem kom henni til aðstoðar hlaut sár á höfði og höndum, mar á brjóstkassa, heilahristing auk þess sem sauma þurfti þrjú spor í höfuð hennar og þrjú spor í vinstri framhandlegg. Gabríel var ákærður fyrir sinn hlut í árásinni. Dæmdur í gæsluvarðhald og fangelsi sama dag Gabríel losnaði úr fangelsi 3. febrúar síðastliðinn. Nokkrum dögum síðar var maður handtekinn grunaður um hnífstunguárás fyrir utan skemmtistað í borginni. Samkvæmt heimildum mbl.is er það Gabríel sem var handtekinn. Dómur var kveðinn upp í máli þeirra bræðra sama dag og Héraðsdómur Reykjavíkur féllst á gæsluvarðhald yfir Gabríel vegna stunguárásarinnar. Gabríel á langan sakaferil að baki. Hann hefur m.a. verið sakfelldur fyrir sinn þátt í hnífaárás í Borgarholtsskóla. Þá hefur hann hlotið nokkra dóma fyrir líkamsárásir. Tómas hetjan hjá toppliðinu West Ham - Man. Utd, staðan er 1:0 Klúður tímabilsins á Brúnni – Tottenham í miklu veseni Frábær endurkoma Tindastóls Elliði fór á kostum í stórleik Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna að ESB Hefur fjármagnað innrásina í Úkraínu Fleira áhugavert Vill auknar fjárfestingar vegna hótana „Skattar eru of háir á barnafjölskyldur“ Talsvert af loðnu á miðunum Að minnsta kosti sex hlíft með yfirstrikunum Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Hafa fengið ýmsar ábendingar um hjúkrunarheimilið Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fólksbíll lenti aftan á gröfu Reynisfjara tekur stakkaskiptum Margrét segir af sér sem rektor Myndir: Sjáðu gjörbreytta Reynisfjöru Deila tilkynningu írsku lögreglunnar Goddur jarðsunginn í dag #110. - Ari yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Látinn eftir slys á Miklubraut „Búið að eyðileggja líf þriggja hjúkrunarfræðinga“ Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Kjartan úr lífshættu en mikið slasaður Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Starfsfólk bráðamóttökunnar smitað af berklum Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Tómas hetjan hjá toppliðinu West Ham - Man. Utd, staðan er 1:0 Klúður tímabilsins á Brúnni – Tottenham í miklu veseni Frábær endurkoma Tindastóls Elliði fór á kostum í stórleik Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna að ESB Hefur fjármagnað innrásina í Úkraínu Fleira áhugavert Ók í hláturgasvímu á ólétta konu Börn geti myndað óeðlileg tengsl við gervigreind Afturköllun verndar ekki tryggð Vill auknar fjárfestingar vegna hótana Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Innkalla fiskmeti vegna gruns um listeríu Selja fleiri íbúðir vegna eftirspurnar Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Íslendingar meðal þeirra handteknu Ljósastýrt hringtorg í Firðinum Frelsissviptur í átta klukkutíma, barinn og rændur Hjólað í verðtryggingu um áramót Flestir með lögheimili í Danmörku Hafa fengið ýmsar ábendingar um hjúkrunarheimilið Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fólksbíll lenti aftan á gröfu Reynisfjara tekur stakkaskiptum Margrét segir af sér sem rektor Myndir: Sjáðu gjörbreytta Reynisfjöru Deila tilkynningu írsku lögreglunnar Goddur jarðsunginn í dag #110. - Ari yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Látinn eftir slys á Miklubraut „Búið að eyðileggja líf þriggja hjúkrunarfræðinga“ Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Kjartan úr lífshættu en mikið slasaður Fólk í hálfgerðu sjokki: Útilokar ekki rannsókn Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Starfsfólk bráðamóttökunnar smitað af berklum Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi