Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Viðurkennir að skýra þurfi almannatryggingafrumvarp

Read Full Article →

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, viðurkennir að skýra þurfi frumvarp um vísitölutengingu almannatrygginga áður en frumvarpið fer úr velferðanefnd til þriðju umræðu á Alþingi. Hingað til hafa greiðslur almannatrygginga verið tengdar við vísitölu neysluverðs. Með þessum breytingum á að draga úr hættu á að lífskjör bótaþega dragist aftur úr öðrum hópum. Rætt var við hann á Morgunvaktinni á Rás 1. Gagnrýni á frumvarpið hefur meðal annars beinst að því að í núverandi mynd geti frumvarpið orðið til þess að greiðslur úr almannatryggingum hækki umfram lægstu laun á vinnumarkaði. „Maður hefur heyrt ítrekaðar dómsdagsspár verði þetta að lögum,“ segir Ragnar Þór. Þörf á betri útskýringum fyrir þriðju umræðu Hagfræðingarnir Gylfi Zoega og Axel Hall deildu á frumvarpið í grein sinni sem birtist í tímaritinu Vísbendingu . Þeir segja að verði frumvarpið sem nú er í höndum Alþingis að lögum verði komið á svokölluðum „tvöföldum lás“ þar sem bætur gætu hækkað umfram laun. „Ef launavísitala hækkar meira en verðlag þá hækka þær í takt við laun en ef verðlag hækkar meira þá halda þær, gagnstætt launum, kaupmætti sínum og hækka þá meira en launavísitalan.“ Þetta rímar við það sem segir í frumvarpinu að í ákveðnum tilfellum geti tvöfaldi lásinn orðið til þess að bætur almannatrygginga gætu hækkað meira en hjá launþegum á vinnumarkaði, sérstaklega hjá láglaunahópum. „Þessi gagnrýni varðandi þennan tvöfalda lás sem gæti mögulega gerst hún á ekki við rök að styðjast einfaldlega, en ég get alveg tekið þeirri gagnrýni um að þetta hefði mátt vera skýrara í lögunum sjálfum og sömuleiðis mætti líka skoða á milli annarrar og þriðju umræðu að skerpa á því,“ segir Ragnar Þór. Kunnuglegar dómsdagsspár úr verkalýðsbaráttunni Ragnar Þór segir að sú gagnrýni sem fram hafi komið, meðal annars frá Samtökum atvinnulífsins, sé keimlík þeirri gagnrýni sem samtökin hafi sett fram gegn hækkun launa þegar Ragnar Þór var formaður VR. „Þegar við vorum að berjast fyrir því að lægstu laun myndu hækka og hér átti allt að fara fjandans til ef slíkt yrði gert og við næðum fram auknum kjarabótum fyrir lægst launaða fólkið,“ segir hann. Þegar komið hafi til hækkana á lífeyrisgreiðslum hafi verið unnið út frá áætlunum um hver launaþróun yrði á næstu tólf mánuðum. „Þær áætlanir hafa aldrei staðist og þar af leiðandi hafa hækkanir á lífeyrisgreiðslum til elli- og örorkulífeyrisþega dregist aftur úr og þetta bil á milli lágmarkslauna og bóta hefur þar af leiðandi aukist,“ segir Ragnar Þór sem telur að ef miðað sé við taxta Eflingar um lágmarkslaun sé munurinn á þeim og bótagreiðslum um 110 þúsund krónur.

Share this article