Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vísitölutenging almannatrygginga gæti minnkað svigrúm ríkisfjármálastefnu

Read Full Article →

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir nauðsynlegt að skýra betur frumvarp til laga um vísitölutengingu almannatrygginga. Þetta kom fram í máli hans á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar í dag. Sjá má upptöku af fundinum í heild sinni hér . „Það virðist ekki ríkja eining um það hvað lögin þýða, eftir því sem ég sé,“ sagði Ásgeir Markmið frumvarpsins er að draga úr hættu á að lífskjör bótaþega dragist aftur úr öðrum hópum með því að tengja greiðslur við vísitölu launa í stað vísitölu neysluverðs. Ekki hefur verið eining um áformin og afleiðingar þeirra og viðurkenndi Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, í morgun að skýra þyrfti frumvarpið frekar fyrir þriðju umræðu. „Eins og lögin eru skrifuð, þá eru kannski nokkrir hlutir sem maður myndi hafa áhyggjur af, í fyrsta lagi er að einhverju leyti verið að tengja stóran hlutan ríkisútgjalda með sjálfvirkum hætti við einhverja aðra stærð sem er launaþróun í landinu,“ segir Ásgeir. „Að einhverju leyti er þá verið að minnka þær frígráður sem fjármálaráðherra hefur til þess að móta ríkisfjármálastefnu,“ segir hann. Á von á því að verðbólga hjaðni með vorinu Gagnrýni á frumvarpið hefur meðal annars beinst að því að í núverandi mynd geti frumvarpið orðið til þess að greiðslur úr almannatryggingum hækki umfram lægstu laun á vinnumarkaði. Hagfræðingarnir Gylfi Zoega og Axel Hall deildu á frumvarpið í grein sinni sem birtist í tímaritinu Vísbendingu . Þeir segja að verði frumvarpið sem nú er í höndum Alþingis að lögum verði komið á svokölluðum „tvöföldum lás“ þar sem bætur gætu hækkað umfram laun. Varðandi efnahagsmálin almennt gerir Ásgeir ráð fyrir að verðbólga hjaðni þegar líður á vorið og að núverandi aðhaldsaðgerðir nægi til að komast nær 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði. Stýrivöxtum var haldið óbreyttum í 7,25 prósentum fyrr í mánuðinum. Næsta stýrivaxtaákvörðun er 18. mars.

Share this article