Innlent | mbl | 17.2.2026 | 12:10 „Það verður bara að koma í ljós“ Staða Guðjóns Haukssonar sem forstjóra HSA verður auglýst. Guðjón gerir enga athugasemd við stjórnsýsluna. Ljósmynd/Austurfrétt „Það var búið að láta mig vita. Það er því ekki þannig að þetta hafi komið mér sérstaklega á óvart,“ segir Guðjón Hauksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Í gær var tilkynnt að staða hans yrði auglýst laus til umsóknar. „Ég er bara sáttur við þessa niðurstöðu,“ segir hann. Guðjón er 45 ára og er á lokaári skipunartíma síns sem er til fimm ára, en hann hefur núna setið í embætti forstjóra í níu ár. Frétt af mbl.is Alma auglýsir tvær forstjórastöður Úttalar sig ekki hvort hann muni sækja um Staða Hildigunnar Svavarsdóttur, forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri, var einnig auglýst en hún óskaði eftir því að láta af störfum strax í gær. Guðjón hefur hins vegar enga ákvörðun tekið hvað snertir framhaldið en skipunartíma hans lýkur 31. desember. „Það verður bara að koma í ljós þegar fram líða stundir. Ég er fyrst og fremst ofboðslega þakklátur fyrir að hafa fengið að vera forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands undanfarin níu ár og ég er bara sáttur og mun kveðja stofnunina sáttur. Ég er stoltur yfir þeim árangri sem HSA hefur náð, oft við erfiðar aðstæður,“ segir Guðjón. Hann segir ólíklegt að hann muni sækja um stöðuna að nýju. „Ég ætla ekkert að úttala mig um það, en mér þykir það ólíklegt,“ segir Guðjón. Frétt af mbl.is Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Gerir enga athugasemd við stjórnsýsluna Hann gerir enga athugasemd við stjórnsýsluna í kringum hugsanleg starfslok. „Mín persónulega skoðun er sú að þegar maður gegnir svona embætti þá á maður það ekki. Það eru fimm ára skipunartímar í hvert skipti og þú færð embættið lánað til ákveðins tíma. Þá er eins gott að maður leggi allt í það og ég hef reynt að gera það. Þetta er opinber þjónusta sem rekin er fyrir skattfé og þá geri ég ekki athugasemd við þessa stjórnsýslu,“ segir Guðjón. Ný augu sjái ný tækifæri Hann segir að tíu ár séu nokkuð langur tími í svona starfi. „Oft sjá ný augu, ný tækifæri. Það hefur verið heiður starfsferils míns að fá að gegna þessu embætti undanfarin ár. Ég hef gert það með framúrskarandi starfsfólki sem ég hef ekki nokkrar áhyggjur af og það mun plumma sig vel til framtíðar,“ segir Guðjón. Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Stór nöfn snúa aftur í enska landsliðið fyrir Íslandsleikinn „Það verður bara að koma í ljós“ Þriðjungur enn með Windows 10 Convicted for protesting aboard whaling ships Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert „Það verður bara að koma í ljós“ Legurýmin gætu nýst von bráðar Framlagið hækkað Eitur sem ekki hefur verið notað áður Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Grunaður dópsali gripinn eftir símtal undir stýri Fólk farið að meðtaka veruleikann Ingu „gjörsamlega misboðið“ Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Stór nöfn snúa aftur í enska landsliðið fyrir Íslandsleikinn „Það verður bara að koma í ljós“ Þriðjungur enn með Windows 10 Convicted for protesting aboard whaling ships Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Úkraínumenn fólk, ekki „tortímendur“ „Það verður bara að koma í ljós“ Eitur sem ekki hefur verið notað áður Fólk farið að meðtaka veruleikann Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Grunaður dópsali gripinn eftir símtal undir stýri Fólk farið að meðtaka veruleikann Ingu „gjörsamlega misboðið“ Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum