Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Andlát: Haukur Guðmundsson

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 5.3.2026 | 5:58 Andlát: Haukur Guðmundsson Haukur Guðmundsson. Setja bókamerki Haukur Guðmundsson fv. rannsóknarlögreglumaður lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 3. mars, á 82. aldursári. Haukur fæddist 7. júní árið 1944 á Brekku í Vogum á Vatnsleysuströnd. Foreldrar hans voru Guðrún Lovísa Magnúsdóttir húsfreyja og Guðmundur Björgvin Jónsson, vélvirki og verkstjóri, en þau eignuðust 12 börn sem öll komust á legg. Haukur starfaði lengi innan lögreglunnar í Keflavík og er hvað þekktastur fyrir aðkomu sína að rannsókn á hvarfi Geirfinns Einarssonar árið 1974. Þar stýrði hann rannsókninni í upphafi, áamt Valtý Sigurðssyni og fleirum, eða þar til henni var formlega hætt árið 1975. Við endurupptöku málsins síðar lét Haukur hafa m.a. eftir sér í fjölmiðlum að hann hefði verið sannfærður um að saklaust fólk hefði verið dæmt í málinu, á grundvelli ófullnægjandi gagna. Haukur hóf búskap ásamt eiginkonu sinni, Vigdísi Gunnlaugu Sigurjónsdóttur, í Lundi í Vogum á Vatnsleysuströnd en fluttu til Innri-Njarðvíkur árið 1970 þar sem þau hjón áttu heima alla tíð á Kirkjubrautinni. Haukur lærði rennismíði á sínum tíma í Vélsmiðjunni Óðni í Keflavík. Auk starfa í lögreglunni vann hann alla tíð við eigin rekstur, meðal annars í farþegaflutningum og vöru- og kranabílaþjónustu. Árið 2010 kom út sjálfsævisaga Hauks Guðmundssonar, sem Freyja Jónsdóttir skrásetti, og nefnist bókin 19. nóvember. Vigdís Gunnlaug, Gulla, lést í desember síðastliðnum, áttræð að aldri. Börn þeirra Hauks eru Guðmundur Björgvin, f. 1964, Andrea Klara, f. 1967, og Berglind Rut, f. 1972. Barnabörnin eru 10 og langafabörnin 22 talsins. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Meiriháttar líkamsárás til rannsóknar Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Yfirmáta smekklegt einbýli á Seltjarnarnesi vekur athygli Snorri bjargvætturinn: „Ég fór að hágráta“ Andlát: Haukur Guðmundsson Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Beint: Fimmti dagur stríðsins í Mið-Austurlöndum Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Mest lesið Í gær Í vikunni Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Loftnetin nú endanlega á útleið Gera alvarlegar athugasemdir: Millilandasæstrengir ekki nóg Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Hægt að græða á því að haldast á örorku Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Segir málflutning Sigríðar hallærislega pólitík Aðstoða ókeypis við gerð skattframtala Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Meiriháttar líkamsárás til rannsóknar Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Yfirmáta smekklegt einbýli á Seltjarnarnesi vekur athygli Snorri bjargvætturinn: „Ég fór að hágráta“ Andlát: Haukur Guðmundsson Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óþekktur kafbátur sökkti írönsku herskipi Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Ríkislögreglustjóri vill efla hryðjuverkavarnir Umdeild próf lögð fyrir nema Mest lesið Í gær Í vikunni Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Loftnetin nú endanlega á útleið Gera alvarlegar athugasemdir: Millilandasæstrengir ekki nóg Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Hægt að græða á því að haldast á örorku Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Segir málflutning Sigríðar hallærislega pólitík Aðstoða ókeypis við gerð skattframtala Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“

Share this article