Innlent | mbl | 17.2.2026 | 14:37 Ásgeir og Þórarinn hafa áhyggjur af bótafrumvarpinu Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu. mbl.is/Eyþór Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segist hafa áhyggjur af bótafrumvarpinu svokallaða, sem varðar breytingu á lögum þar sem bætur almannatrygginga eru tengdar þróun launavísitölu. Það virtist m.a. ekki alveg ríkja eining um það hvað lögin þýddu. Þetta kom fram á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í morgun þar sem Ásgeir og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, sátu fyrir svörum. Þar var fjallað um skýrslu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis fyrir síðari hluta ársins 2025. Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði þá Ásgeir og Þórarin út í frumvarpið á fundi nefndarinnar. Frétt af mbl.is Kristrún segir gagnrýnina byggða á misskilningi Þyrfti að liggja skýrt fyrir „Hvað varðar þessi lög sem að núna eru að setja varðandi tengingu almannatrygginga þá vil ég bara segja í fyrsta lagi það að það virðist ekki – við fylgjumst með opinberri umræðu hér – og það virðist ekki alveg ríkja eining um það hvað lögin þýða, eftir því sem ég sé. Fólki kemur ekki saman um það hvað felist í lögunum,“ sagði Ásgeir. Hann bætti við að hans fyrsta ráðlegging væri sú að það lægi skýrt fyrir um hvað væri verið að deila um. Frétt af mbl.is Ingu „gjörsamlega misboðið“ Hefur áhyggjur „En eins og lögin eru skrifuð þá eru kannski nokkrir hlutir sem maður myndi hafa áhyggjur af. Í fyrsta lagi er að einhverju leyti verið að tengja stóran hluta ríkisútgjalda með sjálfvirkum hætti við einhverja aðra stærð sem er launaþróun í landinu. Að einhverju leyti er þá verið að minnka þær frígráður sem fjármálaráðherra hefur til þess að móta ríkisfjármálastefnu,“ sagði Ásgeir enn fremur. Hann sagði jafnframt að það væri mjög mikilvægt að forðast það sem hefði verið kallað hinn tvöfaldi lás launavísitölu og verðlags, sem komi í veg fyrir tvöfaldar hækkanir bótaþega á við launþega í verðbólguskotum. Frétt af mbl.is Vandræðagangur bótafrumvarps Ekki besti mælikvarðinn Þórarinn vék einnig máli sínu að bótafrumvarpinu. Hann sagði að þessi hugmynd um að miða við launavísitölu væri ekki endilega besti mælikvarðinn vegna þess að launavísitalan væri ákveðið fyrirbæri sem fæli t.d. í sér að þegar að vinnutíminn væri styttur þá hækkaði launavísitalan. „Og það er erfitt að sjá hvaða rök væru fyrir því að þá væru bætur að hækka þegar laun þeirra sem að á almennum markaði eru óbreytt, en vinnutíminn á bak við hefur styst og þá ættu bætur að hækka. Það er kannski ekki alveg heppilegt,“ sagði Þórarinn. Hvetur stjórnvöld til að íhuga málið betur Hann benti einnig á að launavísitalan væri mælikvarði á það sem væri kallað regluleg laun. „Sem þýðir þá að bónusgreiðslur og kaupaukar eru ekki inni í þeim mælikvarða. En svo gerist það stundum í kjarasamningum að það er samið um það að setja þessar greiðslur inn í regluleg laun. Það gerist reglulega þannig. Og þá hækkar náttúrulega launavísitalan þótt að laun viðkomandi hafi ekkert breyst. En það myndi hækka bætur,“ sagði Þórarinn. Hann bætti við að þó að hugsunin væri rétt þá væri launavísitalan ekki endilega heppilegasti mælikvarðinn til að miða við. „Að gera þetta með þessum mekaníska hætti miðað við launavísitölu er kannski eitthvað sem væri vert að hugsa aðeins betur. Ég myndi hvetja til þess.“ Lokað fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru „Þetta er ekkert eðlilega dýrt“ Ásgeir og Þórarinn hafa áhyggjur af frumvarpinu Hótar að sökkva stærsta herskipi sögunnar Vísar ásökunum um einelti og brottvísun á bug Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Vonast til að geta fundið Lúðvík Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Lögreglan sökuð um misferli í morðmáli Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Lögreglan lýsir eftir manni Kostar ríkið hátt í 300 milljónir 180 milljónir króna í starfslokasamninga Grunaður dópsali gripinn eftir símtal undir stýri Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Lokað fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru „Þetta er ekkert eðlilega dýrt“ Ásgeir og Þórarinn hafa áhyggjur af frumvarpinu Hótar að sökkva stærsta herskipi sögunnar Vísar ásökunum um einelti og brottvísun á bug Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Lögreglan sökuð um misferli í morðmáli Eitur sem ekki hefur verið notað áður Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Lögreglan lýsir eftir manni Kostar ríkið hátt í 300 milljónir 180 milljónir króna í starfslokasamninga Grunaður dópsali gripinn eftir símtal undir stýri Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum