Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“

  • What: The Governor of the Central Bank of Iceland, Ásgeir Jónsson, stated that there are no easy solutions to economic challenges.
  • Impact: The statement was made during a meeting of the Icelandic Parliament's Committee on Economic Affairs and Trade, discussing the Central Bank's monetary policy report.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.2.2026 | 12:13 Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. mbl.is/Eyþór Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að í öllum frjálsum hagkerfum fylgist vextir og verðbólga að. „Grundvöllurinn að því að fá lága nafnvexti er náttúrulega að verðbólga gangi niður.“ Hann sagði stýrivextina endurspegla þá stöðu sem ríki og það væru engar patentlausnir í boði. Þetta kom fram á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í morgun þar sem Ásgeir og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, sátu fyrir svörum. Þar var fjallað um skýrslu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis fyrir síðari hluta ársins 2025. Frétt af mbl.is Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Hugsað út fyrir boxið Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, spurði Ásgeir m.a. að því hvort Seðlabanki Íslands gæti ekki hugsað út fyrir boxið og skoðað aðrar leiðir til að berjast við verðbólguna heldur en að hækka einfaldlega stýrivexti. Hún spurði hvernig það væri hægt að réttlæta það að það væru bara skuldsett heimili sem bæru þessar byrðar sem smituðu svo frá sér inn á leigumarkaðinn. „Og er ekki kominn tími að slaka aðeins á verðbólgumarkmiðum ykkar og aðlaga þau að raunveruleikanum? Og hvernig stendur á því að þó að verðbólgan hafi lækkað um heil fimm prósentustig, af hverju hafa þá meginvextir Seðlabankans bara lækkað um tvö prósentustig? Þarna er munurinn heil þrjú prósentustig sem þýða 125 þúsund krónur í vaxtagreiðslur í hverjum einasta mánuði af 50 milljóna króna láni, eða ein og hálf milljón á ári. Og ef launahækkanir valda verðbólgu, hljóta háir vextir þá ekki að gera það líka, því einhvers staðar þurfa fyrirtækin að ná inn fé fyrir þeim,“ spurði Ásthildur Lóa. Verður ekki aðskilið „Það er þannig að í öllum frjálsum hagkerfum að þá fylgist verðbólga og vextir að. Þannig að grundvöllurinn að því að fá lága nafnvexti er náttúrulega að verðbólga gangi niður. Þetta tvennt verður ekki aðskilið nokkurn veginn,“ sagði Ásgeir. Hann bætti við að það væri plan seðlabankans að viðhalda jákvæðum raunvöxtum til þess að kæla hagkerfið og ná niður verðbólgu. Þá væri hægt að lækka vextina. Vilja forðast verðbólguvanda fyrri tíðar „Og það er alveg skýrt og hefur komið fram hjá mörgum löndum og hjá okkur líka hér á fyrri tíð að ef vöxtum er ekki beitt með þessum hætti, eða við myndum leyfa verðbólgu bara að hækka og lækka vexti ofan í það og fá neikvæða raunvexti, að þá myndi það leiða til þess að við myndum fá svipað verðbólguvandamál og við vorum með hér á fyrri tíð, þar sem verðbólga mældist í tugum prósenta. Þannig að þessi aðferðafræði er í rauninni bara grundvöllur að peningamálastjórnun í frjálsum hagkerfum,“ sagði Ásgeir. Hann bætti við að það væri miður að vextirnir bitnuðu á mörgum, bæði heimilum og fyrirtækjum. „En þeir endurspegla þessa stöðu sem við erum í. Og það eru ekki til neinar patentlausnir frá því, þetta er bara staðan. Við verðum að bregðast við þeirri stöðu sem er til staðar.“ Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Stór nöfn snúa aftur í enska landsliðið fyrir Íslandsleikinn „Það verður bara að koma í ljós“ Þriðjungur enn með Windows 10 Convicted for protesting aboard whaling ships Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ „Það er aldrei of seint“: FBI rannsakar hanska Hvetja íslensk stjórnvöld til dáða Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Grunaður dópsali gripinn eftir símtal undir stýri Fólk farið að meðtaka veruleikann Ingu „gjörsamlega misboðið“ Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Stór nöfn snúa aftur í enska landsliðið fyrir Íslandsleikinn „Það verður bara að koma í ljós“ Þriðjungur enn með Windows 10 Convicted for protesting aboard whaling ships Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Hvetja íslensk stjórnvöld til dáða Clinton sakar Trump um yfirhylmingu Legurýmin gætu nýst von bráðar Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Grunaður dópsali gripinn eftir símtal undir stýri Fólk farið að meðtaka veruleikann Ingu „gjörsamlega misboðið“ Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna

Share this article