Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sameinast um nýjan framboðslista

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 17.2.2026 | 19:20 Sameinast um nýjan framboðslista Kerið er eitt helsta kennileitið í Grímsnes- og Grafningshreppi og hefur mikið aðdráttarafl, bæði hjá innlendum og erlendum ferðamönnum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Nýr framboðslisti hefur tilkynnt um framboð í Grímsnes- og Grafningshreppi undir merkjum A-lista, en að framboðinu standa m.a. einstaklingar sem áður skipuðu þá tvo framboðslista sem kosningu hlutu í sveitarstjórn í síðustu kosningum, E- og G-lista. Hvorugur þeirra lista mun því bjóða fram í vor. Oddvitasæti A-listans skipar Guðmundur Finnbogason, skólastjóri Þjórsárskóla á Borg í Grímsnesi. Áður hafði verið kunngjört um framboð Betri sveitar í hreppnum. Frétt af mbl.is Nýtt framboð í Grímsnesinu Guðmundur staðfestir í samtali við Morgunblaðið að á A-listanum sé fólk úr báðum fyrri framboðum, þ.e. af E- og G-lista, en nefnir að þó sé ekki um formlega sameiningu að ræða. Var á E-listanum „Eins og í öðrum minni sveitarfélögum þá hrynur fólk sem vill gefa kost á sér ekki af himnum ofan og síðan var áhugi fyrir því, í þessum hræringum, að fólk af báðum listum gæfi kost á sér. Þetta er engin átakapólitík og ekki hugmyndafræðilegur munur á milli listanna,“ segir Guðmundur, spurður hvað valdi því að fólk af listunum slái sér saman undir nýju merki. Hann kveðst sjálfur hafa átt sæti neðarlega á E-listanum í síðustu kosningum. Spurður hvort hið sameiginlega framboð sé svar við framboði Betri sveitar kannast Guðmundur ekki við að svo sé, þótt í hugum einhverra sé það þannig. „Við erum fyrst og fremst að setja saman lista fólks sem er tilbúið að sinna þessu verkefni,“ segir hann. Öflug uppbygging Í tilkynningu um framboðið segir m.a. að það standi fyrir ábyrgri og markvissri uppbyggingu þar sem fólkið sé ávallt í fyrirrúmi. Lögð sé áhersla á gott og reglulegt samtal við íbúa og fasteignaeigendur og vilji sé til að byggja ákvarðanir á samráði og gagnsæi. Áfram skuli haldið öflugri uppbyggingu í sveitarfélaginu og tryggt að fólk sem þar vilji búa geti fundið húsnæði við hæfi, sem m.a. verði gert með fjölbreyttu og raunhæfu framboði byggingarlóða sem taki mið af eftirspurn hverju sinni. Framboðið vill að áfram verði unnið að uppbyggingu skóla- og leikskólastarfs svo að ungt fólk og barnafjölskyldur sjái sveitarfélagið sem eftirsóknarverðan búsetukost. Jafnframt verði hugsað vel um eldri íbúa sveitarfélagsins. Íbúar eigi að geta treyst á góða þjónustu sama á hvaða aldri þeir eru. Vilja styðja við landbúnað Listinn kveðst vilja styðja við landbúnað í sveitarfélaginu og skapa skilyrði til að öflugt bændasamfélag geti blómstrað. Tryggja þurfi fyrirsjáanleika í skipulagsmálum, gott samstarf við bændur og raunverulegan stuðning við nýsköpun og fjölbreytt atvinnulíf í sveitinni. Jafnframt sé vilji til þess að standa vörð um landið og auðlindir þess, sjálfbæra nýtingu til hagsbóta fyrir samfélagið. Í Morgunblaðinu sl. laugardag kom fram að Andrés Bertelsen, oddviti framboðslista Betri sveitar sem býður fram í fyrsta skipti í Grímsnes- og Grafningshreppi nú í vor, hefði skráð sig í vetur til lögheimilis á Búrfelli í Grímsnesi, án vitundar og vilja konu sem þar býr. Andrés staðfesti það í samtali við Morgunblaðið og kvaðst fullur eftirsjár vegna þessa. Skráning ekki einsdæmi Nú hafa blaðinu borist tíðindi af því að þetta sé ekki í fyrsta skiptið sem Andrés bregður á þetta ráð, en Örvar Bjarnason, sem er eigandi Ásgarðs 2 í Grímsnes- og Grafningshreppi, segir í tölvupósti til Morgunblaðsins að lögheimilisskráning Andrésar á Búrfelli sé ekki einsdæmi. „Við keyptum gamalt býli, Ásgarð 2, sumarið 2024. Hann skráði lögheimili sitt hjá okkur án þess að spyrja. Það tók um tvo mánuði fyrir okkur að fá því breytt. Hann lét líka senda póst erlendis frá á okkar heimilisfang,“ segir Örvar í póstinum og sendi blaðinu jafnframt til staðfestingar afrit af skjali sem honum barst frá þjóðskrá þann 9. september 2024. Þar tilkynnti þjóðskrá að umræddur Andrés Bertelsen hefði skráð sig til heimilis í Ásgarði 2, 805 Selfossi. Rétt er að halda því til haga að Örvar Bjarnason skipar 5. sætið á A-listanum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Grímsnes- og Grafningshreppi. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Kastaði reiðhjóli í dómarann „Við erum nú vön því að lífið er alls konar“ KR-ingar styrkja sig Síminn breytir nafni samstæðunnar Frá Breiðabliki í Fram Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Fólk farið að meðtaka veruleikann Framlagið hækkað Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan 180 milljónir króna í starfslokasamninga Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Kastaði reiðhjóli í dómarann „Við erum nú vön því að lífið er alls konar“ KR-ingar styrkja sig Síminn breytir nafni samstæðunnar Frá Breiðabliki í Fram Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Krefst gagna vegna breyttra skráninga dánarorsaka Eitur sem ekki hefur verið notað áður Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Ásgeir og Þórarinn hafa áhyggjur af frumvarpinu Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan 180 milljónir króna í starfslokasamninga Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article