Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Nýr listi býður fram í Árneshreppi

Read Full Article →

Nýr framboðslisti, Framtíð Árneshrepps, hefur verið kynntur í Árneshreppi á Vestfjörðum fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Markmiðið með framboðinu er að bjóða íbúum, sem ekki telja tímabært að sameina Árneshrepp og Kaldrananeshrepp, raunverulegan valkost. Hagsmunum Árneshrepps betur borgið sem sjálfstætt sveitarfélag Í fréttatilkynningu segir að í aðdraganda kosninga um mögulega sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps, hafi nýr framboðslisti verið kynntur. Markmiðið sé að bjóða þeim íbúum, sem telja að ekki sé tímabært að sameina sveitarfélögin tvö, raunverulegan valkost. „Mikil umræða hefur skapast um fyrirhugaða sameiningu og ljóst er að skiptar skoðanir eru meðal íbúa um hvort slíkt skref sé rétt á þessum tímapunkti. Margt sé enn óljóst varðandi mögulega sameiningu og listinn samanstendur af fólki sem telur að hagsmunum Árneshrepps sé betur borgið sem sjálfstætt sveitarfélag,“ segir í tilkynningu. Á meðal hagsmunamála Framtíðar Árneshrepps er að fjölga störfum í sveitarfélaginu, koma sveitarfélaginu á kortið sem fjarvinnustað, skipuleggja nýjar íbúðarlóðir, hafa stjórnsýsluna opnari og auka íbúasamráð og berjast fyrir bættum samgöngum og auknum möguleikum á heilsársbúsetu. „Við leggjum sérstaka áherslu á samgöngumál og fjölgun íbúa sem tvö lykilatriði fyrir framtíð byggðarinnar,“ segir í tilkynningu. Framboðslisti Framtíðar Árneshrepps í heild sinni: Sigrún Sverrisdóttir - Litla-Ávík Þorgerður Lilja Björnsdóttir – Melar 1 Héðinn Birnir Ásbjörnsson - Djúpavík Hilmar Vilberg Gylfason - Krossnes Róbert Hlífar Ingólfsson – Árnes 2 Thomas Elguezabal - Norðurfjörður Pétur Freyr Ragnarsson - Munaðarnes Kristjana María S. Ásbjörnsdóttir - Djúpavík Davíð Már Bjarnason – Litla-Ávík Kristmundur Kristmundsson - Gjögur

Share this article