- What: The Peruvian Congress impeached interim President José Jerí after only four months in office.
- Impact: Jerí is the seventh leader of Peru in ten years to be removed from office due to corruption allegations.
Þing Perú svipti í dag José Jerí, tímabundinn forseta landsins, embætti eftir aðeins fjóra mánuði í starfi. Jerí er sjöundi leiðtogi Perú á tíu árum og sá nýjasti til að falla vegna spillingar. Fjórir forsetar hafa verið sviptir embætti í Perú á tímabilinu. José Jerí, sem er 39 ára að aldri, var sakaður um óhefðbundnar ráðningar nokkurra kvenna og grun um spillingu sem tengdist kínverskum viðskiptamanni. Jerí tók við embætti í október síðastliðnum. Það var eftir að Dina Boluarte var svipt embættinu á sama tíma og mikil mótmæli gegn spillingu og ofbeldisöldu, sem tengdist skipulagðri glæpastarfsemi, stóðu yfir í Perú. Segist saklaus Saksóknarar hófu rannsókn á því í síðustu viku hvort Jerí hefði misnotað stöðu sína til að hafa áhrif á ráðningar í opinber störf fyrir ríkisstjórnina. Jerí heldur sakleysi sínu fram. Jerí var leiðtogi eindeildarþings Perú þegar hann tók við forsetaembættinu og átti að vera forseti fram að lokum kjörtímabils Boluartes sem lýkur í júlí. Þá tekur nýr forseti við eftir kosningar 12. apríl. Stjórnarskrá Perú heimilar Jerí ekki að gefa kost á sér í komandi kosningum. Óhefðbundnar ráðningar Því var haldið fram í perúska fréttaskýringaþættinum Cuarto Poder að José Jerí hefði eftir að hitta fimm konur gefið þeim störf á forsetaskrifstofunni og í umhverfisráðuneytinu án þess að fara eftir hefðbundnu verklagi. Saksóknarar í Perú segja konurnar raunar níu talsins. Þá er Jerí einnig til rannsóknar vegna meintrar ólöglegrar hagsmunagæslu eftir leynilegan fund með kínverskum viðskiptamanni sem hefur viðskiptatengsl við stjórnvöld. Því hefur verið velt upp hvort svipting Jerís fáeinum vikum fyrir kosningar kunni að vera af pólitískum ástæðum. Yfir 30 manns gefa kost á sér í kosningunum sem er met í Perú. José Jerí er fjarri því að vera fyrsti forseti Perú til að staldra stutt við í embætti. Í nóvember 2020 sagði Manuel Merino, þáverandi forseti Perú, af sér eftir að hafa verið aðeins fimm daga í embætti. Var það í kringum mikil mótmæli í höfuðborginni Lima þar sem þrír létust.