Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

José Balcázar áttundi forsetinn á jafnmörgum árum

  • What: José Balcázar has been appointed as the interim president of Peru.
  • Impact: Balcázar becomes the eighth president in as many years following the removal of José Jerí due to corruption allegations.
Read Full Article →

Mótmælendur kröfðust afsagnar José Jerí.EPA / Paolo Aguilar Þjóðþing Perú hefur útnefnt José Balcázar sem bráðabirgðaforseta fram að kosningum í apríl. Hann verður áttundi forseti landsins á jafnmörgum árum eftir að þingið setti José Jerí af í gær, fjórum mánuðum eftir að hann tók við embætti. Honum var gert að víkja vegna gruns um spillingu tengdri hagsmunagæslu fyrir kínverskan kaupsýslumann auk óhefðbundinna ráðninga nokkurra kvenna í opinberar stöður. Jerí kveðst saklaus af öllum ásökunum. Balcázar verður einnig forseti þingsins. Jerí tók við embætti í október eftir að þingið vék Dinu Boluarte nær einróma til hliðar meðan á hörðum mótmælum gegn spillingu og ofbeldisöldu stóð í Perú.

Share this article