Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lítilsháttar meiðsli þegar rúta hafnaði utan vegar

Read Full Article →

Björgunarsveit, sjúkrabíll og lögregla voru kölluð út frá Kirkjubæjarklaustri fyrir skömmu vegna smárútu sem hafnaði utan vegar nærri Núpsstað, í Skaftárhreppi á Suðurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru sjö um borð. Einhverjir hlutu lítils háttar meiðsli. Verið er að flytja fólkið á Kirkjubæjarklaustur með sjúkrabíl og bíl björgunarsveitarinnar. Gul viðvörun er í gildi á Suðurlandi og Suðausturlandi vegna hríðarveðurs. Búið er að opna Hringveginn milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs en áfram er lokað frá Kirkjubæjarklaustri að Núpsvötnum. Fréttin verður uppfærð.

Share this article