Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vill endurflytja mál gegn Margréti og kalla þrjá dómara fyrir sem vitni

  • What: A lawyer is requesting a retrial in a case involving alleged defamatory statements made by Margrét Friðriksdóttir about a judge.
  • Impact: The retrial could potentially change the outcome of the case.
Read Full Article →

Hilmar Garðars Þorsteinsson, verjandi Margrétar Friðriksdóttur, hefur krafist þess að mál ákæruvaldsins gegn henni, vegna ummæla um Barböru Björnsdóttur héraðsdómara, verði endurflutt. Aðalmeðferð fór fram 16. janúar og hefur dómsuppkvaðningu verið frestað þrisvar. Þar sem meira en fjórar vikur eru liðnar frá aðalmeðferð er hægt að endurflytja málið nema málsaðilar líti svo á að þess sé ekki þörf. Hilmar, verjandi Margrétar, telur hins vegar að endurflytja verði málið og er dómara skylt að verða við því. Hilmar hefur líka farið þess á leit við Jónas Jóhannsson dómara að tvö vitni sem leidd voru fyrir dóm í aðalmeðferð verði kölluð aftur fyrir dóm. Það er Barbara Björnsdóttir, sem kærði ummæli Margrétar um sig til lögreglu, og Símon Sigvaldason. Margrét sakaði þau um að hafa átt í ástarsambandi meðan þau voru bæði dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur. Barbara neitaði því fyrir dómi en Símon sagðist ekki svara fyrir hvort hann hefði átt í sambandi við aðrar konur en eiginkonu sína meðan hann var kvæntur. Verjandinn hefur í skoðanagrein lýst efasemdum um trúverðugleika þeirra vitnisburða. Hilmar vill einnig að Sigríður Hjaltested, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, verði kölluð fyrir sem vitni. Barbara sagði í vitnaskýrslu sinni að ásakanir Margrétar um ástarsamband hennar og Símonar mætti rekja til þess að Sigríður hefði lagt sig í einelti áratugum saman og borið út sögur um sig. Því neitaði Sigríður í viðtali við fréttastofu. Nafn Sigríðar kom fyrst upp við aðalmeðferð og gafst því ekki færi á að taka vitnaskýrslu af henni þá. Fyrir dómara liggur nú að finna dagsetningu fyrir endurflutning málsins og taka afstöðu til kröfunnar um að vitni verði kölluð fyrir dóminn.

Share this article