Tekist var á í máli Margrétar Friðriksdóttur í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Helsta ágreiningsefni dagsins var hvort leiða ætti Barböru Björnsdóttur héraðsdómara og Símon Sigvaldason landsréttardómara aftur fyrir dóminn sem vitni. Þá vildi Hilmar Garðar Þorsteinsson, verjandi Margrétar, einnig leiða Sigríði Hjaltested héraðsdómara fyrir réttinn. Margrét er sökuð um meiðyrði í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara. Málið hafði áður verið flutt í Héraðsdómi í janúar en dómsuppkvaðningu var frestað ítrekað. Hilmar krafðist þess að málið yrði endurflutt á þeim forsendum að of langt væri á milli aðalmeðferðar og dómsuppkvaðningar. Það gerði hann á þeim forsendum að ef meira en fjórar vikur líða frá aðalmeðferð máls og dómsuppkvaðningu sé hægt að fara fram á að mál verði endurflutt. Jónas Jóhannsson dómari sagði áður en réttarhöldin hófust að á sínum þrjátíu ára ferli hefði hann aldrei vitað til þess að mál væri endurflutt af þessum sökum. Formlegur endurflutningur fór ekki fram í dag vegna ágreinings um vitnaleiðslur. Úrskurðað verður um það hvort Símon, Barbara og Sigríður verði leidd sem vitni að nýju í næstu viku. Dómari þurfti að hafa hemil á Margréti Jónas Jóhannsson dómari þurfti að kveða Margréti niður við byrjun réttarhaldanna þegar til orðaskipta kom á milli hennar og Vilhjálms Vilhjálmssonar lögmanns Barböru. Margrét kvað Vilhjálm ekki eiga að tjá sig við meðferðina þar sem hann væri ekki réttargæslumaður. Málið hófst eftir að Barbara Björnsdóttir sakfelldi Margréti á sínum tíma fyrir líflátshótanir í garð Semu Erlu Serdaroglu í máli sem kom til kasta Héraðsdóms Reykjavíkur. Margrét brást við með harðorðum færslum á Facebook þar sem hún kallaði dómarann meðal annars lausláta mellu, sakaði hana um að misnota dómsvaldið til að hefna sín á borgurum og sagði hana hafa selt blíðu sína til að komast áfram í starfi. Barbara og Símon voru ekki viðstödd í dag og lagði Hilmar, verjandi Margrétar, fram formlega beiðni um að þau yrðu kölluð til. Sækjendur fóru fram á að þeirri beiðni yrði hafnað. Margrét hefur sakað Barböru og Símon um að hafa átt í ástarsambandi meðan þau voru bæði dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur. Barbara neitaði því fyrir dómi í fyrri flutningi málsins. Barbara sagði við fyrri réttarhöldin að ekkert væri til í orðum Margrétar. Hún sagði að orðrómur hefði gengið í dómshúsinu um meint samband hennar og Símonar Sigvaldasonar dómstjóra en sagði hann rangan. Barbara rakti orðróminn til Sigríðar Hjaltested, meðdómara sem hún sakaði um að hafa lagt sig í einelti frá 2003. Því neitaði Sigríður í viðtali við fréttastofu. Nafn Sigríðar kom fyrst upp við aðalmeðferð og gafst því ekki færi á að taka vitnaskýrslu af henni þá.