- What: The US military is reportedly prepared to attack Iran, but the president has not yet decided whether to launch an attack.
- Impact: Potential military conflict between the US and Iran.
Bandaríkjaher er reiðubúinn til árása á Íran jafnvel þegar um næstu helgi en forsetinn hefur ekki ákveðið hvort lagt verði til atlögu að landinu. Bandarískir miðlar greina frá þessu og segja Donald Trump hafa verið upplýstan um hernaðaraðgerðir gegn Íran sem ætlað er að valda miklu tjóni, drepa fjölda stjórnmálamanna og hershöfðingja með það markmið að fella klerkastjórnina. Fulltrúar Írans og Bandaríkjanna ræddu nýverið óbeint um kjarnorkusamning með milligöngu embættismanna frá Óman eftir að Trump hótaði ítrekað hernaðaraðgerðum vegna framgöngu stjórnvalda gegn mótmælendum. Markmið viðræðnanna var ekki síst að koma í veg fyrir hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna. Íranir kröfðust afléttingar viðskiptaþvingana og að einblínt yrði á kjarnorkusamninginn sjálfan en Bandaríkjamenn vildu einnig ræða eldflaugaáætlun þeirra og stuðning við sveitir vígamanna í Mið-Austurlöndum. Að viðræðum loknum sagði íranski utanríkisráðherrann Abbas Araghchi samkomulag hafa náðst um almenn meginatriði og að verið væri að leggja drög að næstu fundum en varaforsetinn JD Vance sagði Írani ekki hafa mætt kröfum Bandaríkjanna. Karoline Leavitt, fréttafulltrúi Hvíta hússins, sagði í gær að Írönum væri réttast að komast að samkomulagi við Bandaríkjastjórn og Trump ýjaði enn að árásum í færslu á Truth Social. Talsvert hefur bæst í liðsafnað Bandaríkjahers í Mið-Austurlöndum síðustu vikur. Gervihnattamyndir sýndu að flugmóðurskipið USS Abraham Lincoln, með næstum 80 þotur innanborðs, var um 700 kílómetra frá Íransströndum á sunnudag. Masoud Pezeshkian Íransforseti gaf í skyn í gær að ekki verði gengið að ítrustu kröfum Bandaríkjamanna en kvaðst jafnframt alls ekki vilja stríðsátök.