Íranskir fjölmiðlar segja að engar viðræður eigi sér stað milli íranskra og bandarískra stjórnvalda um endalok átaka í Mið-Austurlöndum. Það hafa þeir eftir upplýsingum frá utanríkisráðuneyti landsins. Þetta sé aðeins bragð Trumps til að lækka orkuverð. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því á Truth Social fyrr í dag að ráðamenn ríkjanna hefðu átt í gagnlegu samtali á síðustu tveimur dögum. Hann hefði því frestað fyrirhuguðum árásum á orkuinnviði Írans um fimm daga á meðan viðræður héldu áfram. Á laugardag hótaði hann að grípa til árása á orkuver landsins og gjöreyða þeim ef ekki yrði opnað fyrir umferð skipa um Hormússund. Eftir að Trump birti færslu sína lækkaði olíuverð á mörkuðum umtalsvert eða um nærri tíu prósent. Heitir kröftugum árásum ef ekki tekst að semja AFP-fréttaveitan hefur eftir Trump að Bandaríkin eigi í viðræðum við háttsettan embættismann í Íran, ekki æðstaklerkinn. „Við vitum ekki hvort hann sé á lífi,“ bætir hann við. Hann segir Bandaríkjamenn og Írana sammála um mörg atriði. Stjórnvöld í Tehran verði þó að binda enda á kjarnorkuáætlun sína, hætta að auðga úran og láta af hendi allt auðgað úran. Hann segir að ef viðræður gangi vel næstu daga gæti samkomulag náðst. „Annars höldum við bara áfram að sprengja af öllu afli.“ Segir Írana hafa hringt í sig Líkt og áður segir hefur Trump frestað fyrirhuguðum árásum Bandaríkjahers á orkuver Írans. „Á morgun ætluðum við að sprengja í loft upp stærsta raforkuverið þeirra sem kostar yfir 10 milljarða dala,“ segir hann. „Hvers vegna myndu þeir vilja það?“ „Svo þeir hringdu, ég hringdi ekki. Þeir hringdu. Þeir vilja semja,“ segir Trump.