- What: Icelandic police are investigating an assault where pepper spray was used on a young person.
- Impact: The incident occurred in the upper areas of the capital region.
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 29 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ráðist að ungum dreng með piparúða — málið til rannsóknar Markús Þ. Þórhallsson Lögreglan hefur til rannsóknar árás þar sem piparúða var beitt á ungan dreng í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins. Lögreglukonur að störfum í miðborg Reykjavíkur. Mynd úr safni. RÚV Þetta kemur fram í morgunskeyti lögreglunnar en málavextir eru ekki frekar tíundaðir þar. Jafnframt var lögregla kölluð til vegna nokkurra þjófnaða úr verslunum í vesturhluta borgarinnar. Þau mál voru leyst með skýrslugerð á vettvangi. Enginn gisti fangageymslur lögreglunnar í morgun. Fyrir 29 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Málefni Gaza í brennidepli fyrsta fundar friðarráðs Trumps Fyrsti fundur friðarráðs Bandaríkjaforseta verður í Washington í dag. Þangað eru komnir tugir þjóðarleiðtoga, margir úr hópi einræðissinnaðra vina forsetans en færri úr hópi hefðbundinna samherja Bandaríkjanna. Málefni Gaza verða í brennidepli. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Kósovó Hashim Thaçi heldur fast við sakleysi af stríðsglæpum og glæpum gegn mannkyni Fyrrverandi forseti Kósóvó heldur enn fram sakleysi sínu vegna ákæru um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni í Kósóvóstríðinu. Hann ásamt öðrum liðsmönnum Frelsishers Kósóvó er fyrir rétti í Haag. Margir í Kósóvó líta á mennina sem hetjur. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Perú José Balcázar áttundi forsetinn á jafnmörgum árum Markús Þ. Þórhallsson Mótmælendur kröfðust afsagnar José Jerí. EPA / Paolo Aguilar Þjóðþing Perú hefur útnefnt José Balcázar sem bráðabirgðaforseta fram að kosningum í apríl. Hann verður áttundi forseti landsins á jafnmörgum árum eftir að þingið setti José Jerí af í gær, fjórum mánuðum eftir að hann tók við embætti. Honum var gert að víkja vegna gruns um spillingu tengdri hagsmunagæslu fyrir kínverskan kaupsýslumann auk óhefðbundinna ráðninga nokkurra kvenna í opinberar stöður. Jerí kveðst saklaus af öllum ásökunum. Balcázar verður einnig forseti þingsins. Jerí tók við embætti í október eftir að þingið vék Dinu Boluarte nær einróma til hliðar meðan á hörðum mótmælum gegn spillingu og ofbeldisöldu stóð í Perú. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Bandaríkjaher reiðubúinn til árása og Hvíta húsið segir klerkastjórninni réttast að staðfesta kjarnorkusamning Þótt Bandaríkjaforseti hafi ekki fyrirskipað árás á Íran segjast hershöfðingjar reiðubúnir, jafnvel þegar um komandi helgi. Forsetinn hafi verið upplýstur um þunga hernaðaraðgerð sem ætlað sé að ganga milli bols og höfuðs á klerkastjórninni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Örfá prósent nota ekki bílbelti í Evrópu en eiga þátt í mörgum banaslysum Evrópa er í fararbroddi hvað snertir öryggisbeltanotkun í bílum. Viðhorfið breytist svolítið eftir því sem sunnar og austar dregur í álfunni. Þau fáu prósent sem ekki nota beltin koma oft við sögu í banaslysum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grænland Repúblikanar ekki hrifnir af ásælni Bandaríkjaforseta Rúmlega sjö af hverjum tíu Bandaríkjamönnum líkar ekki ásælni forsetans í Grænland og hótanir um beitingu hervalds til innlimunar landsins. Athygli vekur að um helmingur Repúblikana styður ekki áform hans um yfirtöku landsins. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Vatíkanið vill ekki vera með í friðarráði Trumps Vatíkanið hefur afþakkað boð Bandaríkjaforseta um þátttöku í friðarráði hans. Mat páfa er að Sameinuðu þjóðirnar skuli takast á við ófrið í heiminum. Bandaríkjaforseti fer ekki í grafgötur með að friðarráðið ætli sér svipað hlutverk og öryggisráð SÞ. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Arsenal misstigu sig gegn botnliði Úlfanna Jóhann Páll Ástvaldsson Saka fagnar marki sínu í upphafi leiks. IMAGO Topp- og botnlið ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta mættust í kvöld. Arsenal og Wolves gerðu 2-2 jafntefli. Bukayo Saka skoraði fyrsta mark Arsenal á fimmtu mínútu eftir sendingu Declan Rice. Hincapie tvöfaldaði forskotið í upphafi seinni hálfleiks en Wolves lögðu ekki árar í bát. Hugo Bueno minnkaði muninn og Calafiori gerði sjálfsmark í uppbótartíma. Arsenal er nú með fimm stiga forskot á City sem á þó leik til góða. Arsenal er með 58 stig í efsta sæti. Wolves er sem fyrr í neðsta sæti með 10 stig að 27 leikjum loknum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Líkur á loftmengun næstu daga: Rykbindiefni búið og ekki hægt að hreinsa götur Mikil loftmengun hefur mælst á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga og það sama gæti verið uppi á teningnum næstu daga. Rykbindiefni er ekki til á landinu, ekki er hægt að hreinsa göturnar í frosti og útlit er fyrir áframhaldandi þurrk. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál „Ég held því fram að ógn sé að taka á sig mynd á norðurslóðum“ Um helgina voru orrustuþotur frá þremur ríkjum við æfingar hérlendis, hluti af verkefni á vegum NATO. Heimurinn í kringum okkur tekur hröðum breytingum þessa dagana, með afleiðingum sem ekki sér fyrir endann á, meðal annars hervæðingu. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Átta fórust í snjóflóði í Kaliforníu Átta eru látnir og eins er enn saknað eftir að snjóflóð féll í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum í gær. Alls voru 15 í hópnum en sex var bjargað. Snjóflóðið er eitt það mannskæðasta sem orðið hefur í Bandaríkjunum tæpa hálfa öld. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Beið í um níu mánuði eftir að fá starfsleyfi Það getur tekið marga mánuði fyrir heilbrigðisstarfsfólk frá löndum utan EES að fá starfsleyfi hér á landi. Hjúkrunarfræðingur frá Bandaríkjunum þurfti að bíða í um níu mánuði. Mikill skortur hefur verið á menntuðu starfsfólki á Landspítalanum. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Keflavík færist nær topppakkanum Jóhann Páll Ástvaldsson Keflvíkingar. RÚV / Mummi Lú Keflavík vann 94-86 sigur á Grindavík í efstu deild kvenna í körfubolta. Grindavík var þremur stigum yfir í hálfleik, 44-47. Munurinn var eitt stig Keflvíkingum í vil, 64-63, að þremur leikhlutum loknum. Heimakonur í Keflavík voru mun sterkari í fjórða leikhluta og uppskáru átta stiga sigur. Toppbaráttan er ansi hörð og jöfn í deildinni en með sigrinum kemst Keflavík nær henni. Keflavík er með 20 stig í 6. sæti en Grindavík er sæti ofar með 22 stig. Njarðvík leiðir deildina með 26 stig en Valur, Haukar og KR eru jöfn í 2. til 4. sæti með 24 stig. 18. febrúar 2026 kl. 20:29ÍÞRÓTTIR Fótbolti Blikar úr leik í Evrópubikar eftir tap gegn Häcken Jóhann Páll Ástvaldsson Liðskonur Breiðabliks fagna marki. RÚV / Mummi Lú Breiðablik er dottið úr leik í Evrópubikar kvenna í fótbolta en liðið mátti þola tap 4-1 tap gegn Häcken í kvöld. Häcken er Svíþjóðarmeistari og vannst fyrri leikurinn 7-0. Fanney Inga Birkisdóttir og Thelma Karen Pálmadóttir léku með Häcken í kvöld. Þær sænsku komust í tveggja marka forskot með mörkum Pauliny Nyström og Emmu Östlund. Elísa Viðarsdóttir minnkaði muninn með glæsilegu skoti. En Håcken svaraði með mörkum frá Ölvu Selerud og Monicu Jusu Bah. Häcken vann því samanlagt 11-1. 18. febrúar 2026 kl. 20:25INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Ýmsar lausnir – en enn liggur fólk á göngum Semja á við Klíníkina og flýta opnun nýs hjúkrunarheimilis til að leysa vanda bráðamóttöku. Enn er ófremdarástand á deildinni, að sögn læknis og fólk liggur í gluggalausum rýmum á bráðamóttöku svo dögum skiptir. 18. febrúar 2026 kl. 19:49INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Öskrað með mýktinni Upp á síðkastið hefur hlaupið líf í hannyrðir og andóf, ekki síst í Bandaríkjunum. Rauðar húfur sem ýmsir prjóna til að mótmæla gjörðum innflytjendalögreglunnar vestra hafa verið áberandi á prjónasíðum. 18. febrúar 2026 kl. 19:14INNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Fyrrverandi forstjóri Barnaverndarstofu um Bakkakot: „Ég vissi ekki um tilvist þessa heimilis“ Fyrrverandi forstjóri Barnaverndarstofu segir að málefni Bakkakots hafi ekki ratað á sitt borð meðan hann stýrði stofnuninni. Hann hafi fyrst heyrt af málinu þegar fjallað var um það í Kveik. 18. febrúar 2026 kl. 18:56INNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur „Almenna byggðakvótakerfið er í algerri stöðnun“ Alger uppstokkun er fram undan á úthlutun almenna byggðakvótans ef áform innviðaráðherra ganga eftir. Landssamband smábátaeigenda vill að tekið verði upp kerfi sem útrými kvótabraski og festi byggðakvótann enn frekar í sessi. 18. febrúar 2026 kl. 18:02INNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Kristín Gunnarsdóttir ráðin til Landsbankans Kristín Gunnarsdóttir, sem stjórnað hefur hlaðvarpinu Komið Gott, hefur verið ráðin forstöðumaður upplýsingamiðlunar hjá Landsbankanum. 18. febrúar 2026 kl. 17:33INNLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Norðmenn vilja vita hvort Íslendingar séu á hraðferð inn í Evrópusambandið Forsætisráðherrar Íslands og Noregs funduðu í Noregi í dag. Þau ræddu meðal annars breytta stöðu á norðurslóðum og mikilvægi öryggis- og varnarmála. Norðmenn sýndu afstöðu ríkisstjórnarinnar gagnvart Evrópusambandinu mikinn áhuga. 18. febrúar 2026 kl. 17:16INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Vill endurflytja mál gegn Margréti og kalla þrjá dómara fyrir sem vitni Verjandi Margrétar Friðriksdóttur hefur farið þess á leit að sakamál gegn henni verði endurflutt þar sem meira en fjórar vikur eru síðan aðalmeðferð fór fram. Tveir dómarar báru vitni og nú vill hann að sá þriðji mæti fyrir rétt. 18. febrúar 2026 kl. 16:51ERLENDAR FRÉTTIR Grænland Friðrik Danakonungur kominn til Grænlands Danakonungur er kominn til Grænlands í þriggja daga opinbera heimsókn. Hún var boðuð í janúarlok sem stuðningur við málstað Grænlendinga. Formaður landsstjórnar Grænlands og forseti grænlenska þingsins tóku á móti honum í Nuuk í hádeginu. 18. febrúar 2026 kl. 16:13MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Tónskáldið György Kurtág 100 ára Ungverski tónsmiðurinn György Kurtág, eitt frægasta tónskáld samtímans, heldur upp á 100 ára afmæli sitt 19. febrúar. Í tilefni af því verður þátturinn „Á tónsviðinu“ tileinkaður honum þann dag. 18. febrúar 2026 kl. 15:53ÍÞRÓTTIR Vetrarólympíuleikar Stelur fleiri metum — nær Klæbo hinum fullkomnu leikum? Norski