- What: The article discusses a case of alleged medical malpractice at a hospital in Lund, Sweden, resulting in the death of a 22-year-old Icelandic woman.
- Impact: The article focuses on the family's struggle to navigate the healthcare system following the incident.
Innlent | Morgunblaðið | 19.2.2026 | 8:06 „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Jönu Sif Sigurjónsdóttur varð ekki langra lífdaga auðið, hún lést 22 ára gömul á Háskólasjúkrahúsinu í Lundi í kjölfar mistakaferlis sem enn vitjar föður hennar í martröðum hans. Ljósmynd/Aðsend „Jana Sif fæddist 5. ágúst 2000 og fór beint á vökudeildina, hún greindist með hjartagalla og fimmtán dögum seinna vorum við konan lent í Bandaríkjunum, þangað var flogið með Jönu í öndunarvél.“ Sá sem rifjar þessa aldamótaatburði upp við Morgunblaðið heitir Sigurjón K. Guðmarsson, Selfyssingur upphaflega en búsettur í Rakkestad í norska fylkinu Østfold um langt árabil. Sigurjón er bílasmiður, hefur um árabil smíðað torfærubíla og sjálfur setið undir stýri slíkra í torfærukeppnum. Í þessu viðtali ætlum við hins vegar að beina sjónum að þeim kerfisfrumskógi sem Sigurjón hefur mátt glíma við, í Svíþjóð og á Íslandi, eftir að Jana Sif lést vorið 2023 í kjölfar þess sem átti að vera einföld hjartaþræðing á Háskólasjúkrahúsinu í Lundi í Svíþjóð þá um vorið. Hefur Sigurjón átt í miklum samskiptum við IVO, kæru- og eftirlitsnefnd sænska heilbrigðiskerfisins, ekki síður en íslenska aðila, en Jana Sif bjó alla sína tíð á Íslandi, hjá móður sinni á Akranesi. Þykkir veggir kerfisins Á Íslandi hefur Sigurjón rekist á veggi umboðsmanns Alþingis, heilbrigðisráðuneytis, landlæknis og sjúkratrygginga. Þykka veggi og harða en íslenska heilbrigðiskerfið sendi Jönu Sif til Svíþjóðar í aðgerðina á sínum tíma. Hún var flokkuð sem barn þrátt fyrir að vera 22 ára þegar hún lést, þar sem ein fjölmargra aðgerða í Boston í frumbernsku hennar orsakaði blóðtappa sem olli þroskaskerðingu. „Samkvæmt sænskum lögum var hún send á sjúkrahús fyrir fullorðna,“ rifjar Sigurjón upp af vordögum 2023 sem hann segir enn vitrast honum í martröðum, tæpum þremur árum síðar. Torfærukappi og dóttir hans. Sigurjón varð á sínum tíma Noregsmeistari í torfæruakstri þótt í Svíþjóð biðu hans torfærur sem báru hærri toll. Ljósmynd/Aðsend „Læknirinn sem framkvæmdi aðgerðina, barnahjartalæknir, kom frá annarri deild á sjúkrahúsinu og þekkti þar af leiðandi ekki þá sem hann átti að starfa með við aðgerðina. Hann hafði hvorki samband við okkur foreldrana né Jönu Sif fyrir aðgerðina, var í páskafríi og skaust bara í þetta. Starfsfólk gjörgæsludeildar vissi ekki einu sinni hvað hann hét. Það hefði verið mikil hjálp fólgin í því fyrir okkur að heyra í honum,“ segir Sigurjón. Skiljanlega. „Jana Sif fór með okkur á KFC kvöldið áður og var þá í fínu formi eftir aðstæðum. Hún gekk sjálf inn á sjúkrahúsið og fór þaðan út í kistu,“ segir faðirinn og á ekki auðvelt með að rifja upp ögurstundu í lífi fjölskyldunnar. Stakk gat á öndunarveginn Í ljós kom að læknirinn var ekki með það alveg á hreinu hvað gert hafði verið áður í heilbrigðismálum Jönu Sifjar. „Hann mætti okkur aðstandendum fyrst eftir að allt var komið í óefni,“ segir Sigurjón og rekur svo mistakasöguna á háskólasjúkrahúsinu sem er löng. „Hann ákvað að fara í útvíkkun á æðinni að vinstra lunga þrátt fyrir að ekki væri hægt að koma nálum inn í nára hennar kæmi eitthvað upp á, til dæmis ef setja þyrfti hana í hjarta- og lungnavél sem svo reyndist vera stór þáttur í málinu. Eftir aðgerðina sagði læknirinn að ef ekkert hefði verið gert þarna hefði hún ekki átt meira en tvö til fimm ár eftir ólifað,“ heldur Sigurjón áfram. Bætir hann því við að úr því svo var hefði varla verið mjög krefjandi tímaspursmál að undirbúa aðgerðina betur. En hvað gerðist þá um páskaleytið 2023? Í aðgerðinni rifnaði æðin sem færði lungunum blóð frá hjartanu. Fór læknirinn þá í björgunaraðgerðir, setti stoðnet með hólk utan um æðina og náði að þétta hana. „Æðin rifnaði hins vegar með þeim afleiðingum að blóð streymdi ekki til vinstra lunga Jönu Sifjar. Þar með hafði æðin enga tengingu við súrefnisrými í lungum,“ segir Sigurjón frá. Meðan á þessu stóð lagði annar læknir slöngu fyrir öndunarvél í hægra lunga og þá varð sá skaði sem kostaði dótturina lífið. Slangan gerði gat á öndunarveginn sem ekki uppgötvaðist fyrr en þremur sólarhringum síðar en þá hafði Sigurjón spurt læknana hvort mögulegt væri að blæðandi sár væri þar. Nýbakaðir foreldrar í ágúst 2000. Jana Sif fæddist með alvarlegan hjartagalla og var þegar flogið með hana til Bandaríkjanna þar sem ófáar aðgerðir biðu hennar. Ljósmynd/Aðsend Lungun óstarfhæf í þrjá sólarhringa Í aðgerðinni urðu læknarnir varir við að blóð var komið í hægra lunga Jönu Sifjar og hún var hreinlega að drukkna í eigin blóði. Hjarta- og lungnavél, sem þá var komin til skjalanna, var ekki hægt að tengja við nára svo læknarnir opnuðu brjóstholið og tengdu vélina beint við hjartað. Bæði lungun voru þá orðin óvirk og læknarnir fundu ekki út hvar blæðingin gæti verið – hún var þá um gatið sem slangan hafði gert á öndunarveginn. Á þessari stundu hefði það ráðið úrslitum hefði blæðingin fundist. Lungu Jönu Sifjar höfðu verið óstarfhæf í þrjá sólarhringa þegar Sigurjón spurði læknana hvort mögulegt væri að sár gæti verið í öndunarveginum. „Þar fundu þeir það strax,“ segir hann. „Þá var farið með slöngu með blöðru á niður í öndunarveginn og þannig tókst að stöðva blæðinguna. Á fjórða til fimmta degi fékk hún svo blóðtappa í heilann,“ rifjar Sigurjón upp. Þá hafði Jana Sif verið flutt milli hæða til að setja hana í sneiðmyndatöku daginn áður, en töluverð áhætta fylgdi því að flytja hana til, slíkt var ástand hennar þá. Það næsta sem gerðist í þessu átakanlega máli í Svíþjóð var að foreldrunum voru færðar vægast sagt sláandi fregnir. „Nýr læknir kom þá til okkar og sagðist halda að heilinn væri dáinn og spyr hvort við viljum ekki fara og kveðja hana – það væri svo dýrt að halda þessu áfram,“ segir Sigurjón og er í raun enn hvumsa yfir því sem þau foreldrarnir fengu framan í sig á sjúkrahúsinu í Lundi um páskana 2023. „Við svöruðum þessu neitandi, áttum varla orð,“ rifjar Sigurjón upp, „sögðum honum að hann skyldi bara koma og tala við okkur þegar hann vissi eitthvað, ekki þegar hann héldi eitthvað.“ Síðasta kvöldmáltíðin var snædd á KFC í Svíþjóð. „Hún gekk sjálf inn á sjúkrahúsið og fór þaðan út í kistu,“ rifjar Sigurjón upp. Ljósmynd/Aðsend Baráttunni lýkur Á fimmta degi hafi svo komið í ljós að á sjúkrahúsinu var til sneiðmyndatæki sem hægt hefði verið að fara með inn á stofuna til Jönu Sifjar og þar með sleppa við þá áhættu sem tekin hafði verið daginn áður með því að flytja hana milli hæða. „Þetta er á föstudaginn eftir páska og við héldum bara áfram að fara með bænirnar okkar. Það var kominn bænahópur á Facebook sem í voru 36.000 manns,“ segir Sigurjón af þungum dögum í apríl 2023. Við þessa dapurlegu frásögn má bæta því að á sunnudagsmorgninum kom vakthafandi læknir auga á blóðtappa í slöngu á hjarta- og lungnavélinni en ekki var brugðist við þessu tímanlega með þeim afleiðingum að tappinn fór inn í blóðrás Jönu Sifjar og kostaði hana lífið, þá 22 ára gamla. Baráttunni lauk mánudaginn 17. apríl 2023. Þann dag var dóttir Sigurjóns úrskurðuð látin eftir ítarlega rannsókn. „Dóttir þín lifir ekki lengur,“ var Sigurjóni og konu hans tilkynnt í lengra samtali við lækni sem tekið var upp og blaðamaður hefur fengið að heyra. „Við fengum enga áfallahjálp eða neitt í þá áttina. Presturinn var veikur,“ rifjar Sigurjón upp af páskunum 2023. „Reyndar kom félagsráðgjafi þarna, kona sem hjálpaði okkur með bílastæði og hótel nálægt sjúkrahúsinu, og hún sagði okkur hvernig við ættum að kæra þetta miðað við svörin sem við fengum frá sjúkrahúsinu. Reyndar voru stærstu mistökin okkar, svona eftir á að hyggja, að hafa ekki farið beint út á lögreglustöð og kært þetta,“ segir maður sem nú hefur staðið í linnulausum bréfaskriftum, kærum og stappi við sænska kerfið auk þess íslenska. Dr. Gunnlaugur Sigfússon birtist Óvæntur liðsauki birtist mitt í skelfilegri páskahátíð þar sem hvert áfallið hafði vægast sagt rekið annað. Þetta var dr. Gunnlaugur Sigfússon, sérfræðingur í almennum barnalækningum og hjartalækningum á Landspítalanum. Gunnlaugur gjörþekkir sögu Jönu Sifjar og hefur verið foreldrunum og dóttur þeirra innan handar frá upphafi þeirrar þrautagöngu sem á þau var lögð. Þeir Sigurjón höfðu vitanlega verið í góðu sambandi meðan á öllu saman stóð og við gefum Sigurjóni orðið. „Ég krafðist þess að fá allar læknaskýrslur afhentar áður en ég færi heim og sagðist mundu bíða eftir þeim. Við biðum fram á miðvikudag og þetta var auðvitað stórmál. Ég byrsti mig aðeins og það var þannig að þá komu þarna vaktmenn sem voru bara tilbúnir að henda okkur út ef eitthvað gerðist. Þá vorum við að tala við læknana á gjörgæslunni og þar var danskur læknir sem prentaði þetta allt út og lét okkur fá þetta. Ég treysti þá orðið engum þarna lengur eftir það sem á undan var gengið,“ segir hann frá. Glaðlynd stúlka í gömlum bíl. Sigurjón segir að eftir á að hyggja hafi stærstu mistökin verið að fara ekki beint til lögreglunnar eftir andlát Jönu Sifjar. Ljósmynd/Aðsend „Þá birtist Gunnlaugur þarna allt í einu. Hann hafði þá bara hoppað upp í næstu flugvél á Íslandi og komið út. Hann var búinn að vera með Jönu Sif frá degi eitt í hennar veikindum. Þá er haldinn smá fundur aftur á sjúkrahúsinu og þeir segja að þeir vilji fá að kryfja hana,“ heldur Sigurjón áfram. Honum leist ekki á blikuna. „Ég spurði Gunnlaug hvort ekki væri hægt að kryfja hana á Íslandi, mér fannst þeir þarna í Svíþjóð alveg vera búnir að róta nóg í þessu. Þetta átti ekki að vera nokkurt mál og þeir sögðust senda hana með flugi heim eftir þrjá daga, en þeir héldu henni í 20 daga og þá var engin leið að fá nothæfa niðurstöðu úr krufningunni. Eftir að krufningin fór fram á Íslandi var bara hringt í mig eftir klukkutíma og sagt „þetta er búið“, og mér féllust bara hendur. Ég er 99 prósent viss um að þeir hafa krufið hana í Svíþjóð,“ lýsir Sigurjón grunsemdum sínum. Tíu daga frestur til andsvara Þegar dóttir hans kom loks til Íslands var svo langur tími liðinn frá andláti hennar að ógerningur var að finna sárið í öndunarveginum sem gert hafði verið með slöngu öndunarvélarinnar. Í kjölfar þessara atburða hófst langvinnt skriffinnskuferl