Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fer ekki í flík látins bróður í fjósið

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 9.5.2026 | 22:37 Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Jónína er fædd árið 1968 og sést hér í galla sem hún klæðist í minningu bróður síns. Ljósmynd/Sigríður Margrét Ágústsdóttir Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Í ár fagna 66 gráður norður hundrað ára afmæli sínu sem okkur finnst mikið tilefni,“ segir Sigríður Margrét Ágústsdóttir við Morgunblaðið, markaðsfræðingur og listfengur ljósmyndari rótgróins íslensks fyrirtækis sem eitt sinn var eyrnamerkt sjóklæðum fyrir íslenskar hetjur hafsins en mætti nú til dags nánast telja með tískuvöruframleiðendum enda merkið heimsþekkt og flíkurnar þaðan orðnar annað og meira en sjóklæði. Fyrirtækið heitir auk þess nú orðið 66°North, tímanna tákn og ekkert við því að segja á tímum alþjóðavæðingar. Talandi um að segja eitthvað segir Sigríður frá því að í tilefni afmælisins hafi fyrirtækið ákveðið að snúa linsunni í aðra átt – að fólkinu sjálfu og þeim sem fötunum skrýðast. „Þannig varð hundrað ára verkefnið til sem inniheldur myndir af hundrað manns, fæddum árin 1925 til 2026, og hefur tekið rúmt ár, ég hef ferðast um allt land vegna þess,“ segir Sigríður sem sannarlega hefur sveist blóðinu við að birta hundrað ára sögu fyrirtækisins í myndum fremur en máli. „Ég hef hitt fjölda manns, þar á meðal ótrúlega áhugaverða einstaklinga sem sögðu mér sögu sína og hleyptu mér inn í líf sitt,“ heldur hún áfram og játar um leið að hún hafi verið feimin í fyrstu við þessa innrás í líf fólks en feimnin rjátlast af henni við hlýjar viðtökur myndefnanna sem tóku henni með kostum og kynjum. Níels Friðrik Harbo hinn gjörvilegasti með skegg sem undirstrikar hreina Íslendingasagnaímynd þjóðar í norðri. Ljósmynd/Sigríður Margrét Ágústsdóttir Fólk stoppað á götu „Mig hefur alltaf langað að mynda fólk í daglegu lífi þess, ekki alltaf bara fólk sem er í sviðsljósinu,“ segir markaðsfræðingurinn og bætir því aðspurð við að verkefnið við að nálgast hinn almenna notanda framleiðslu gráðanna 66 hafi verið tvískipt. „Við settum hlekk á Facebook-síðuna okkar þar sem fólki var boðið að bjóða sig fram ætti það áhugaverða flík og um þá leið fengum við marga. Hins vegar langaði mig líka að stoppa fólk bara úti á götu eða í strætó, jafnvel bara hafa samband við áhugaverða kandídata,“ svarar Sigríður sem ólm vildi fá 66-notanda af einum stærsta vinnustað Íslands, Landspítalanum. „Ég hafði samband við vinkonu mína sem vinnur þar og spurði hvort þar ynni einhver áhugaverður karakter sem notaði föt frá okkur og hún kom mér í samband við eina sem hefur búið á Íslandi frá aldamótum og talar ótrúlega góða íslensku. Vinkonan sagði mér að þetta væri ein dugmesta kona sem hún þekkti. Þessi manneskja er hreinlega stór hluti af Landspítalanum. Mig langaði líka að fá mynd af manneskju með gervifót frá Össuri, sem notaði 66-flíkur, og ég hafði beint samband við strák með fót þaðan sem vinnur að auki hjá Össuri. Þetta snerist dálítið um hvað mér fannst mikilvægt að mynda. Og bóndinn á Vestfjörðum, hún var alveg yndisleg,“ segir Sigríður. Dugnaðarforkurinn Zineta Pidžo en af henni fara miklar sögur á Landspítalanum hefur Morgunblaðið fyrir satt. Ljósmynd/Sigríður Margrét Ágústsdóttir Bóndinn á Vestfjörðum? „Ég fer ekki í honum í fjósið, þetta er alveg sparigalli,“ segir Jónína Eyja Þórðardóttir, bóndi á Þórustöðum í Önundarfirði, innt eftir fatavali sínu, og hugsa einhverjir lesenda væntanlega til bókarinnar Bændur á hvunndagsfötum eftir Helga Bjarnason. Samfestingur Jónínu frá 66 gráðum norður er engin hvunndagsflík. Þessa flík átti bróðir hennar sem nú er látinn og heiðrar Jónína minningu ástvinar síns með því að nota gallann við hátíðleg tækifæri, svo sem þegar hún fer á vélsleða. „Litli bróðir minn átti þennan galla, fékk hann þegar hann var fjórtán ára og var svo orðinn of stór í hann þegar hann var orðinn sautján ára og þá fékk ég hann,“ segir bóndinn frá, „ég er búin að stækka og minnka öll þessi ár en alltaf hefur gallinn passað á mig. Svo er ég með annan sem ég nota í húsin,“ segir Jónína sposk. Hver eru sparitilefnin þá? „Þegar maður fer á vélsleða eða er að leika sér í snjónum með börnunum eða þvíumlíkt,“ svarar bóndinn á Þórustöðum um hæl, „ég passa vel upp á hann,“ segir Jónína að lokum og kveður með því að búskapurinn gangi vel, „það er alltaf nóg að gera í honum ef maður nennir“, segir hún að skilnaði. Sigríður Margrét er markaðsfræðingur og listfengur ljósmyndari sem bar hitann og þungann af myndahlutanum. Ljósmynd/Sigríður Margrét Ágústsdóttir Í upphafi var sjóklæðnaðurinn „Við erum núna á afmælisárinu með nokkra viðburði og hluti sem við erum að gera og í þessu tilfelli, í kringum myndasýninguna, langaði okkur að fagna Íslendingum og fólkinu sem hefur mótað vörumerkið öll þessi ár,“ segir Fannar Páll Aðalsteinsson markaðsstjóri 66°North um tímamótaár í sögu fyrirtækisins. Hann segir það ákaflega skemmtilegt að fá að skyggnast inn í raunveruleika fólks, eins einstaklings fyrir hvert ár í sögu fyrirtækisins, hvort sem í leik eða starfi sé, og fá innsýn í hversdagsleika þess. Hvað kemur fyrst upp í huga þinn á hundrað ára afmæli fyrirtækisins? „Það er kannski fyrst og fremst hvernig fyrirtækið hefur þróast með þjóðinni gegnum alla hennar kafla og breyttan lífsstíl,“ svarar Fannar, „það snerist í upphafi um sjóklæðnað sem svo varð að fatnaði fyrir björgunarsveitir, sjóklæðnað sem varð að fötum sem fólk nottar í réttum og útivist, vörumerkið hefur þróast stöðugt með nýjum lífsstíl og nýjum aðstæðum, það er kannski það skemmtilegasta við þessa sögu,“ segir Fannar Páll Aðalsteinsson markaðsstjóri og á lokaorðin í þessari frásögn af hundrað ára afmæli fyrirtækis sem með réttu mætti kalla eitt af fjöreggjum íslenskrar þjóðar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Á fjórða tug drepnir þrátt fyrir vopnahlé „Gerðum allt sem við gátum til að tapa þessu“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið „Á endanum drógum við stutta stráið“ Léttist á ótrúlegan hátt Umræðan Snúum Reykjavík við Játningar frjálslynda málfræðingsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óboðlegur sveigjanleiki Pútín telur stríðið nálgast endalokin Naumur eyðslutími „Staðan er eins góð og nokkurn tímann“ Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Óboðlegur sveigjanleiki Táraðist við að hringja bjöllunni Flugi aflýst í annað sinn í vikunni Sex færslur rangt merktar „Mér hefur víða verið kennt um þetta mál“ Tveir unnu 520 þúsund krónur Samkomulag Vals og borgarinnar alls ekki í höfn Einkunnirnar ekki til hjá borginni Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Miðflokksmenn verja myndbandið Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Húsnæðislán á 47 sekúndum Nýjast á mbl.is » Á fjórða tug drepnir þrátt fyrir vopnahlé „Gerðum allt sem við gátum til að tapa þessu“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið „Á endanum drógum við stutta stráið“ Léttist á ótrúlegan hátt Umræðan Snúum Reykjavík við Játningar frjálslynda málfræðingsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samræmd próf eina leiðin Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Engin úrræði og engin ábyrgð Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Óboðlegur sveigjanleiki Táraðist við að hringja bjöllunni Flugi aflýst í annað sinn í vikunni Sex færslur rangt merktar „Mér hefur víða verið kennt um þetta mál“ Tveir unnu 520 þúsund krónur Samkomulag Vals og borgarinnar alls ekki í höfn Einkunnirnar ekki til hjá borginni Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Miðflokksmenn verja myndbandið Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Húsnæðislán á 47 sekúndum Loka

Share this article