Menning | Myndlist og hönnun | Morgunblaðið | 20.4.2026 | 6:22 Heklaði sinn eigin brúðarvönd Silja Ósk Þórðardóttir menntuð í vöruhönnun og þjóðfræði. Ljósmynd/Aðsend Steinþór Guðbjartsson [email protected] Setja bókamerki Silja Ósk Þórðardóttir er menntuð í vöruhönnun og þjóðfræði. Henni er margt til lista lagt og hún heklar til dæmis blóm sem eru ekki aðeins nákvæmar eftirlíkingar af þekktum tegundum heldur fölna ekki eins og lifandi blóm. „Ég byrjaði að hekla blóm þegar ég og móðuramma mín, Helga Guðjónsdóttir, gerðum saman brúðarvöndinn minn 2011,“ upplýsir hún, en þau Silja og Tumi Ferrer fluttu til Noregs með tvo unga syni sína í febrúar 2020 og búa í Ósló. Tumi vinnur við kaffibrennslu og hún er í hlutastarfi hjá íslensku kirkjunni. Verkið „Eitt eilífðar smáblóm“, holtasóley, hárbrúða og rjúpnalauf. Ljósmynd/Aðsend Skömmu eftir að þau settust að í Ósló tók Silja upp þráðinn á ný og blóm, blómvendir og barmblóm hennar hafa vakið verðskuldaða athygli. Íslendingafélagið pantaði til dæmis gleymmérei frá henni til að gefa íslensku sendiherrahjónunum, Högna Kristjánssyni og Ásgerði Magnúsdóttur, sem senn hverfa á brott. Þegar Halla Tómasdóttir kom í opinbera heimsókn til Noregs í fyrra fékk hún að gjöf holtasóley, þjóðarblóm Íslendinga, eftir Silju. „Þetta hefur spurst út og ég fæ stöðugt fleiri pantanir,“ segir Silja en nýlega opnaði hún reikning á Instagram, Dagbók safnara, til að kynna listina. Brúðarvöndur Silju frá 2011. Ljósmynd/Aðsend Listin á sér engin takmörk Helga, móðuramma Silju, kenndi Silju að prjóna, þegar hún var fimm ára, og skömmu síðar að hekla. „Síðan hef ég alltaf verið að búa til eitthvað og sköpun hefur alla tíð verið mjög mikilvægur partur í lífi mínu. Ekki bara að prjóna og hekla heldur líka að að teikna, búa til hluti úr leir og fleira.“ Hún bætir við að á menntaskólaárunum hafi hún til dæmis búið til skartgripi úr ýmsum efnum eins og vír, grænum sælgætispokum og glerkúlum. Ljósmynd/Aðsend „Ég byrjaði á því að skapa aðeins fyrir mig sjálfa en fljótlega fór ég að selja hlutina og núna hekla ég til dæmis húfur og vettlinga og mála fugla á steina sem ég sel á Íslandi.“ Silja lagði mikið upp úr giftingunni. „Mig langaði til þess að vera með og eiga blómvönd sem myndi ekki fölna heldur vera alltaf ferskur,“ segir Silja. Ljósmynd/Aðsend „Ég talaði um þetta við ömmu og hún stakk upp á að ég skyldi hekla hann. Við völdum stærð og liti og hekluðum síðan brúðarvöndinn og tvo litla vendi fyrir brúarmeyjarnar auk barmblóma fyrir svaramennina.“ Silja segir um mikið nákvæmnisverk að ræða. „Ég er mjög fljót að hekla en er mjög vandvirk og geri prufur þar til ég er ánægð,“ segir hún. „Það er ótrúlegt að sjá hvað ein nál getur skapað góða endurmynd af blómum sem eru til í náttúrunni.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni 2,2 milljarðar endurgreiddir Karlar í jakkafötum gætu eyðilagt þetta Útför Björgvins Halldórssonar opin öllum „Sexy Ru“ hundahvíslari Kíkti í dagbækur vinkvennanna Bubbi og Quarashi gáfu út plötur í tilefni dagsins Eftirsjá að markvissari stjórn Uppsetning á listaverki hafin Hætti öllu sukki Nálgast gervigreind eins og véfrétt Kíkti í dagbækur vinkvennanna 2,2 milljarðar endurgreiddir Uppsetning á listaverki hafin Bubbi og Quarashi gáfu út plötur í tilefni dagsins „Sexy Ru“ hundahvíslari Karlar í jakkafötum gætu eyðilagt þetta Útför Björgvins Halldórssonar opin öllum Eftirsjá að markvissari stjórn Tilnefnd til Gullrýtingsins Stofutónleikum í Sigurjónssafni frestað Útför Björgvins Halldórssonar opin öllum Vinsælasti leikari Íslands Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Hætti öllu sukki Hótar að nauðga Þura þorði aldrei að kalla sig söngkonu Lífi hennar rétt svo bjargað Kíkti í dagbækur vinkvennanna „Bæjarbíó þyrfti að brenna“ Stikla: Svona sér Hollywood leiðtogafundinn fyrir sér Áhugaverð viðtöl Menning „Ég er á einhverju rófi“ Menning Allt yfirborðskenndara í LA Menning Sorgin er allt um kring Menning Þarf dauðaþögn til að skrifa Menning Málaði trjáboli með varalitum Mest lesið Í gær Í vikunni 2,2 milljarðar endurgreiddir Karlar í jakkafötum gætu eyðilagt þetta Útför Björgvins Halldórssonar opin öllum „Sexy Ru“ hundahvíslari Kíkti í dagbækur vinkvennanna Bubbi og Quarashi gáfu út plötur í tilefni dagsins Eftirsjá að markvissari stjórn Uppsetning á listaverki hafin Hætti öllu sukki Nálgast gervigreind eins og véfrétt Kíkti í dagbækur vinkvennanna 2,2 milljarðar endurgreiddir Uppsetning á listaverki hafin Bubbi og Quarashi gáfu út plötur í tilefni dagsins „Sexy Ru“ hundahvíslari Karlar í jakkafötum gætu eyðilagt þetta Útför Björgvins Halldórssonar opin öllum Eftirsjá að markvissari stjórn Tilnefnd til Gullrýtingsins Stofutónleikum í Sigurjónssafni frestað Útför Björgvins Halldórssonar opin öllum Vinsælasti leikari Íslands Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Hætti öllu sukki Hótar að nauðga Þura þorði aldrei að kalla sig söngkonu Lífi hennar rétt svo bjargað Kíkti í dagbækur vinkvennanna „Bæjarbíó þyrfti að brenna“ Stikla: Svona sér Hollywood leiðtogafundinn fyrir sér Áhugaverð viðtöl Menning „Ég er á einhverju rófi“ Menning Málaði trjáboli með varalitum Menning Upplifði hryllingstilfinningu Menning Óttaðist að missa barnið sitt Menning Ómögulegt að gera þetta svona sjaldan