Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Háleit markmið í húðvöruheiminum

Read Full Article →

„Ég verð stærst eftir fimm ár, ég ætla að fá að segja það,“ sagði Helga Sigrún Hermansdóttir, stofnandi og rannsókna- og þróunarstýra hjá Dóttir Skin, í Morgunútvarpinu á Rás 2. Fyrir nokkrum árum opinberaði Helga Sigrún markmið sitt að eiga stærsta húðvörumerki landsins og hefur unnið hörðum höndum að því síðan. Síðasta ár var það besta í sögu Dóttir Skin en hún er verkfræðingur í hagnýttri efnafræði og hefur nýtt eigin þekkingu í þróun á vörum fyrirtækisins; sólarvörn, rakaserum og rakamaska. Hlustaðu á viðtalið í Morgunútvarpinu í spilaranum hér fyrir neðan. Helga Sigrún hefur tileinkað náms- og starfsferli sínum síðustu átta árin því að gera Dóttir Skin að veruleika. Helga Sigrún hefur tileinkað náms- og starfsferli sínum síðustu átta árin því að gera Dóttir Skin að veruleika. Hún fór yfir sögu fyrirtækisins í Morgunútvarpinu en sagði einnig frá því hvernig hún leggur sig fram við að fræða og finnur til ábyrgðar þegar kemur að því að leiðrétta falskar upplýsingar á netinu. „Það er auðveldara en nokkru sinni áður að dreifa röngum upplýsingum og koma þeim hratt til margra á stuttum tíma.“ sagði hún í Morgunútvarpinu. „Það eru allskonar mýtur, til dæmis að sólarvarnir séu skaðlegar, að það sé meira krabbameinsvaldandi að nota sólarvörn en að leyfa sér að brenna eða fá lit í sólinni og þetta er að stórum hluta til vegna samfélagsmiðla.“ Helga Sigrún skilur hvaðan áhyggjurnar koma og leggur sig fram við að koma réttum upplýsingum á framfæri. „Ég finn til ákveðinnar ábyrgðar sem sérfræðingur að segja: Hæ, ég skil hvaðan áhyggjurnar koma. Ég fatta af hverju þú ert smeyk við að nota sólarvörn, ég skil að það voru einhverjar rannsóknir sem sýndu fram á einhver hormónaraskandi áhrif en sólarvörnin mín er steinefnasólarvörn, ég geri hana að ástæðu. Ekki til að taka þátt í hræðsluáróðri, heldur til að geta mætt sem flestum. Mér finnst mikilvægt sem vísindamaður að ég taki ábyrgð og reyni að koma í veg fyrir að þessar misvísandi upplýsingar, sem koma fram á netinu, nái að grassera.“ Morgunútvarpið er á Rás 2 alla virka morgna milli klukkan 7 og 9.

Share this article