Á hverjum morgni klukkan sex vaknar Sigurður Ernir Þórisson og byrjar að búa til hatta í samræmi við beiðnir viðskiptavina sem hafa komið í heimsókn til hans við Ingólfsstræti, þar sem vinnustofan er við hlið Gamla Bíós. Hann vinnur hörðum höndum fram að hádegi við hattagerð samkvæmt aldagömlum hefðum og skreytir svo hattana í stíl við persónuleika framtíðareigenda. Eftir hádegi fundar Sigurður svo með nýjum viðskiptavinum og segir að þeir fundir séu mjög mikilvægir þar sem þeir gefi honum tækifæri til að kynnast einstaklingnum betur. Það veiti honum enn betri hugmynd um það hvers konar hattur passi hverjum og einum. „Við tölum kannski í hálftíma um hatta en svo fer bara klukkutími í að spjalla um lífið og tilveruna. Við veljum kannski feld og lit og svo segi ég fólki yfirleitt að það þurfi ekki að ákveða neitt meira í þeim tíma. Síðan getur fólk skoðað hvort það vilji skreyta hattinn, hafa einhverja þemu eða bara láta hattinn spila aðalhlutverkið.“ Vinnudagar Sigurðar hefjast klukkan sex á morgnana og vinnur hann langt fram á kvöld eins og sannur kúreki. © Helgi Steinar (Viðskiptablaðið) Sigurður byrjaði að starfa sem sjálfstæður hattari veturinn 2020 en þar á undan hafði hann unnið í Herrafataverslun Kormáks & Skjaldar. Á þeim tíma var vinur hans að leita sér að ákveðnum hatti og eftir árangurslausa leit ákvað Sigurður að búa hattinn til sjálfur. „Það fóru svo aðrir að spyrja hann út í hattinn og hann sagðist hafa fengið hann hjá Sigzon, sem er gælunafn sem ég fékk þegar ég var tíu ára. Eftir það fóru að berast fyrirspurnir og nú fimm árum seinna er ég enn að gera næsta hattinn sem kom á eftir þeim fyrsta.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .