Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Frjósamt fé á Einarsstöðum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 11.5.2026 | 22:45 Frjósamt fé á Einarsstöðum Sigþór Sigurðsson á Einarsstöðum með fallega þrílembinga. mbl.is/Atli Vigfússon Atli Vigfússon Laxamýri Setja bókamerki Sauðburður er víða hafinn í Þingeyjarsýslum og á nokkrum bæjum er hann töluvert langt kominn. Él hafa verið þrálát og vetrarlegt um að litast. Á Einarsstöðum í Reykjahverfi er sauðburður að mestu leyti búinn og nú bíða menn eftir betri tíð til að koma fénu út, en snjór er yfir öllu og kuldi. Sigþór Sigurðsson bóndi á Einarsstöðum segir ekki mikil hlýindi í kortunum en hann ætli samt að reyna að setja eitthvað út um helgina. Hann segir það nauðsynlegt fyrir lömbin að hreyfa sig og ærnar þurfa að komast í nýgræðinginn. Sigþór segir að það sé ekki mikið að hafa fyrir skepnurnar þegar snjór er yfir öllu. „Það er ekki mikið að hafa úti þegar allt er undir snjó en það lagast fljótt ef hitnar í veðri.“ Það fer mjög vel um féð hjá Sigþóri því hann hefur nægilegt húspláss og það er rúmt á skepnunum. Hann ber vel undir þær því það er lykilatriði að hafa þurrt og vistlegt fyrir lömbin. Sigþór býr við mikla frjósemi hjá ánum en hann fékk tvær fjórlembur og margar þrílembur. Þrátt fyrir tíðarfarið er Sigþór bjartsýnn. „Það er betra að fá hretið núna en í byrjun júní eins og tvö síðustu ár. Maður verður þó að hafa varann á og ég mun hafa féð sem næst fjárhúsunum til að vera fljótur að setja inn aftur ef veðrið skyldi versna í vikunni.“ Áfram kalt næstu daga Í spám Veðurstofunnar er gert ráð fyrir áframhaldandi norðanátt og hita um eða undir frostmarki á Norðaustur- og Austurlandi. Á laugardag og sunnudag er gert ráð fyrir vestlægri eða breytilegri átt, dálítilli rigningu eða súld með köflum og hiti verði þrjú til átta stig, en þurrt að mestu. Þótt Sigþór sé bjartsýnn og ætli að setja féð út um helgina er ekki víst að allir sauðfjárbændur á Norðaustur- og Austurlandi geti leyft sér það. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Starmer á vonarvöl Frjósamt fé á Einarsstöðum Blikar tryggðu sér oddaleik á Hornafirði Gripinn – bylmingshögg á Foxtrot Breiðablik á toppinn eftir endurkomusigur Umræðan Ábyrg fjármálastjórn Viðurkennum vandann Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Vill segja bless við bókstafina strax í sumar Talið í Breiðholti vegna tónleika Herra Hnetusmjörs Skellti sér sextugur í myndlistarnám Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Ekki leið en í sjokki „Fari alltaf einhverjar sögur af stað“ Handtekinn með þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Segir vændismansal stærsta vandamálið Gott að fá vorhretið snemma í ár Vöggustofubygging verði rifin Tveir unnu 520 þúsund krónur Líkt var eftir að farþegaþota hefði farist Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Nýjast á mbl.is » Starmer á vonarvöl Frjósamt fé á Einarsstöðum Blikar tryggðu sér oddaleik á Hornafirði Gripinn – bylmingshögg á Foxtrot Breiðablik á toppinn eftir endurkomusigur Umræðan Ábyrg fjármálastjórn Viðurkennum vandann Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir vopnahléið vera í öndunarvél Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Þungt högg og fjárfestingar í hættu Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Ekki leið en í sjokki „Fari alltaf einhverjar sögur af stað“ Handtekinn með þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Segir vændismansal stærsta vandamálið Gott að fá vorhretið snemma í ár Vöggustofubygging verði rifin Tveir unnu 520 þúsund krónur Líkt var eftir að farþegaþota hefði farist Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið

Share this article