Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sauðburður á kosninganótt í Fljótsdal: „Það er enginn friður“

Read Full Article →

Það er ekkert frí á sauðburðavaktinni að þó það sé kosninganótt. Ágúst Ólafsson fréttamaður heimsótti Valþjófsstað í Fljótsdal þar sem bóndinn Einar er að störfum. Farið er að síga á seinni hlutann í sauðburðinum. „Þær eru búnar að bera 26 í dag, um það bil. Þannig þetta er búið að vera rífandi gangur í dag og nóg að gera,“ segir Einar. Fólkið á Valþjófsstað missir þó ekki af kosningunum þrátt fyrir að vera að störfum úti í fjárhúsi. Sjónvarp er inni á setustofu. „Maður þarf að fylgjast með þessu eins og öðru sko,“ segir Einar. „Það þurfa allir að hafa allt á hreinu á þessum slóðum. Þó að við séum uppi í afdal þá erum við ekkert út úr tengingu við umheiminn þó að sumir vilji meina það.“ Einar segir mikilvægt að hafa góða aðstöðu við sauðburðinn. „Við búum hérna liggur við á þessum tíma.“

Share this article