Innlent | Sunnudagsblað | 14.3.2026 | 11:14 Eins og jólin þegar osturinn kom Eirný Ósk Sigurðardóttir er oft nefnd ostadrottning Íslands en hún átti lengi og rak verslunina Búrið. Nú sér hún um Matarmarkað Íslands sem er um helgina. mbl.is/Ásdís Ásdís Ásgeirsdóttir Setja bókamerki Ostadrottningin Eirný Ósk Sigurðardóttir bauð blaðamanni í heimsókn til sín í miðbænum þar sem hún býr ásamt nokkrum feimnum köttum sem héldu sig til hlés á meðan við spjöllupum um lífið, tilveruna og osta! Að sjálfsögðu bauð Eirný upp á dýrindis gruyère-ost og kex með, ásamt jurtatei. Eirný er ein af þessum hressu týpum sem tala hátt og mikið og hlæja dátt og innilega; það verður blaðamanni fljótt ljóst. Hún hefur farið aðrar leiðir en við flest enda flutti hún níu mánaða til Tansaníu og hefur búið víða erlendis um ævina. „Ég hef unnið fyrir sjálfa mig síðan ég var tvítug, enda þyki ég rugga bátnum hvert sem ég fer,“ segir Eirný og hlær hressilega. Opnaði korter í hrun Eirný bjó í Edinborg í sautján ár þar sem hún rak meðal annars krá. Í kringum árið 2007 fór faðir Eirnýjar að tala um uppganginn á Íslandi og að hún ætti endilega að drífa sig heim, auk þess gæti hún verið nálægt sístækkandi fjölskyldunni. „Ég kom heim 17. maí 2007 og opnaði Búrið í september 2008. Ég opnaði á föstudegi og hrunið varð á mánudegi. Ég komst í alla fjölmiðla heimsins; franska, ítalska, bandaríska. Konan sem opnar ostabúð rétt fyrir hrun!“ segir Eirný og brosir. „Ég hef alltaf haft áhuga á ostum, alveg frá því ég var krakki. Stjúpi minn í Afríku fékk oft senda kassa fulla af cheddar, stilton og alls kyns öðrum ostum. Það var eins og jólin þegar osturinn kom,“ segir hún. Ostar hafa alltaf verið áhugamál hjá Eirnýju. „Svo er ég naut og er í fædd á kínverska ári uxans, þannig að ég er bara belja,“ segir Eirný kímin. Hvað gerðist svo þegar hrunið varð? „Ég var búin að standa þarna í búðinni ein í marga daga þegar karl stingur höfðinu inn og segir illkvittnislega: „Heldurðu að þetta gangi?“ Ég var með mjög góð sambönd erlendis og hafði tekið inn eitt og hálft tonn af osti og af því að ég þekkti fólkið lánaði það mér fyrir honum. Svo eftir hrunið þá næstum fimmfaldaðist reikningurinn og það tók mig tæp fimm ár að borga til baka,“ segir hún. „Hrunið fór illa með mig en ég lifði það af og ekki bara það, heldur var ég eftir nokkur ár komin í mjög góð mál og stækkaði og stofnaði Ostaskólann og hóf einnig framleiðslu á eigin vörulínu. Námskeið voru stór hluti af rekstrinum og ég er stolt af því að nokkur þúsund manns hafa komið í Ostaskólann yfir árin, meðal annars starfsfólk Mólkursamsölunnar og Matís,“ segir Eirný og segist hafa orðið að halda fyrirtækinu á floti með alls kyns aukavinnu en allt var þetta samt gaman. Harpa fýkur ekki! Þegar Eirný var með Búrið stofnaði hún Matarmarkað Búrsins sem í dag heitir einfaldlega Matarmarkaður Íslands. Nú hefur hann verið í fimmtán ár í Hörpu, tvisvar á ári, á vorin og fyrir jólin, en hann er einmitt haldinn nú um helgina, 14.-15. mars. „Þarna eru allir smáframleiðendur landsins með sínar afurðir, 40-50 framleiðendur. Þarna er hægt að fá fisk, harðfisk, sósur, sultur, kjöt og svo mætti lengi telja,“ segir Eirný, en upphafið að ævintýrinu var í Búrinu. „Hrunið bjó svolítið til smáframleiðendahreyfinguna hér á Íslandi. Ég kynntist holdanautabændum í Kjós, Dodda og Lísu og datt í hug að gera eitthvað fyrir búðina og bað þau að koma með nautakjöt í bæinn á uppstigningardag 2009. Þau komu og það mokaðist út holdanautakjöt. Árið eftir, í tilefni af Terra Madre, Alþjóðadegi móður jarðar, hóaði ég í Guðmund í Holtsseli og Jóhönnu Þorvaldsdóttur geitamömmu á Háafelli og bað þau að vinna saman og búa til geitamjólkurís. Þetta leiddi til þess að 2011 var ég með tjald fyrir utan búðina og bauð tíu framleiðendum að koma. Veðrið var hræðilegt; tjaldið fauk og þurfti fólk að festa það niður. Menn voru þarna í kuldagöllum, en á bílaplanið mættu þrjú þúsund manns, og það í óveðri! Árið eftir gerðum við Hlédís Sveinsdóttir frá Beint frá býli þetta aftur og þá var sól og sex þúsund manns komu. Þá kom líka löggan og sagði okkur vera að skapa umferðaröngþveiti; bílum hafði verið lagt í görðum og úti um allt. Það varð kaos og við fengum miklar skammir,“ segir hún. „Þá var að leggja hausinn í bleyti og við Hlédís, sem er nú meðeigandi minn að Matarmarkaði Íslands, ræddum að hafa markaðinn í Hörpu þar sem um var að ræða byggingu sem myndi ekki fjúka í vondu veðri. Það var svo í desember 2013 að Matarmarkaðurinn var fyrst haldinn í Hörpu og heimsóttu hann fimmtán þúsund gestir það árið,“ segir hún. Um helgina verða margir smáframleiðendur með vörur sínar á Matarmarkaði Íslands í Hörpu. Ljósmynd/Ólafur Árdal Nú er meðaltalið 25 þúsund manns á tveimur dögum, en mest hafa mætt 32 þúsund manns. Í dag mæta þangað bæði innlendir og erlendir framleiðendur með vörur sínar. „Hugmyndir eru hættulegar. Í dag er þetta barn sem er orðið að unglingi sem ég og Hlédís erum bara að elta. Þetta er eigin lífvera,“ segir Eirný að lokum en þess má geta að Matarmarkað ur Íslands er opinn laugardag og sunnudag milli 11 og 17 í Hörpu, sem ekki fýkur. Ítarlegt viðtal er við Eirnýju í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Þar segir hún frá litríku lífi í Afríku og Edinborg og ræðir um ástríðuna fyrir mat og sérstaklega ostum. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Eins og jólin þegar osturinn kom Guardiola: Titilbaráttan búin ef við töpum stigum Flúðu Nígeríu og settist að á Íslandi Langvinn skjálftahrina suðaustan við Bárðarbungu Í svaðilför þvert yfir Suðurskautslandið Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ekki hægt að segja nei við þessi augu! Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Segir verðmiðann slá sig sem háan Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Hjálmar H. Ragnarsson látinn Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Eins og jólin þegar osturinn kom Guardiola: Titilbaráttan búin ef við töpum stigum Flúðu Nígeríu og settist að á Íslandi Langvinn skjálftahrina suðaustan við Bárðarbungu Í svaðilför þvert yfir Suðurskautslandið Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kvartað undan rukkunum Isavia Segir Pútín hjálpa Írönum „dálítið“ Yfir eitt þúsund árásir á dag Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Segir verðmiðann slá sig sem háan Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Hjálmar H. Ragnarsson látinn Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar