Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Gengur langt ef þess þarf

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 16.2.2026 | 16:50 Gengur langt ef þess þarf Birna Rún gerir grín að lífinu og tilverunni. Ljósmynd/Saga Sig. Ekki er hægt að segja annað en að Birna Rún Eiríksdóttir grínisti sé algerlega bremsulaus. Í fyrra fór hún af stað með uppistandið Bremsulaus með tvær sýningar í huga í Tjarnarbíói en varð að bæta við aukasýningum og var alltaf uppselt. Hún sýndi á Sviðinu á Selfossi síðastliðinn laugardag og verður síðan með þrjár sýningar í Bæjarbíói í Hafnarfirði á næstunni. Þegar er uppselt dagana 20. og 21. febrúar en enn má fá miða 27. mars. „Svo verð ég með uppistandið á fleiri stöðum úti á landi í maí og júní,“ segir hún og upplýsir að skemmtun með breyttu sniði byrji í bæjarhátíðinni Hjarta Hafnarfjarðar í sumar. Grínmegin í lífinu Fyrstu spor Birnu á þessum vettvangi fólust í upphitun á tilraunauppistandi Snjólaugar Lúðvíksdóttur 14. febrúar 2024. Á Valentínusardeginum fyrir tveimur árum. Hún bað Snjólaugu um aðstoð eftir að hafa séð uppistand hennar og Sögu Garðarsdóttur og Snjólaug brást vel við. „Ég hef alltaf verið grínmegin í lífinu og hafði gengið með uppistand í maganum lengi, var meðal annars í Improv Ísland í tíu ár og grínaðist á samfélagsmiðlum. Snjólaug hjálpaði mér af stað og ég borgaði fyrir mig með því að hita upp fyrir hana á þremur tilraunakvöldum.“ Bætir við að þremur dögum síðar hafi Björn Bragi hent sér út í djúpu laugina í Sykursalnum. „Hann lét mig grínast sem kynni á grínhátíð og það kveikti þennan neista.“ Bremsulaust uppistand Í kjölfarið bauðst henni að taka þátt í sýningum með mörgum hópum í um það bil ár. „Ég fékk að láta í ljós mitt skína í 15 til 20 mínútur hverju sinni en var alltaf aðeins of lengi. Það var bara svo gaman hjá mér og gaman hjá áheyrendum að ég gleymdi mér alltaf.“ Á einni sýningu var hún þess vegna höfð síðust og aftur teygðist úr tímanum. „Þá sagði ein úr hópnum: Birna mín, er ekki kominn tími til að þú verðir með eigin sýningu?“ Umboðsmaðurinn hafi tekið undir þau orð og boltinn byrjað að rúlla. Birna flutti fyrstu útgáfuna af uppistandinu á Akureyri, fann hvað virkaði og setti síðan á fullt á frumsýningunni í Tjarnarbíói í lok september síðastliðins. „Bremsulaus er í raun lýsing á mér, snýst aðallega um orkuna í mér, þegar ég grínast, því þá á ég það til að vera frekar bremsulaus og geng langt ef þess þarf,“ segir hún. Dagskráin sé ekki njörvuð niður heldur taki hún mið af aðstæðum hverju sinni. „Ég fer ekki alltaf með sama textann heldur segi frá því sem ég sé og heyri inni á milli.“ Tekur manninn sinn fyrir Hún grínast mikið með langtímaástarsambönd. Hún hafi verið með sama manni í 14 ár og tali af reynslu. „Margir hafa áhyggjur af því hvað manninum mínum finnst um sýninguna, þar sem hann er vel tekinn fyrir og ég fegra hlutina ekki neitt. Það er samt engin ástæða til að hafa áhyggjur af mínum manni og ég fer yfir það á sýningunni hvað hann græðir á þessu öllu saman. Öll pör virðast tengja við þetta, alveg sama hvað þau eru ólík. Það finnst mér svo fallegt við þetta. Lífið er í raun ógeðslega fyndið.“ Birna útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands 2016 og hefur mikla reynslu sem leikari. Hún fékk Edduverðlaunin sem „Besta leikkonan í aukahlutverki“ fyrir túlkunina á Hönnu, stelpu í neyslu, í þáttaröðinni Rétti 3 2016. „Ég var mjög mikið í dramahlutverkum og þar var ekkert grín.“ Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Gengur langt ef þess þarf Tímabilið búið eftir aðeins tvo leiki Landsliðsþjálfarinn pirraður: Ég tók ekki þessa ákvörðun Í Frakklandi eru bollur í boði allan ársins hring Hjálpaði mönnum að kaupa kynlíf af eiginkonu sinni Góðar sögur eru sígildar Það er skýrt, borgarlína er óþörf Fleira áhugavert Telur andstöðu við friðlýsingu ekki skaða samstarf Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn Úkraínumenn fólk, ekki „tortímendur“ Dregur framboð sitt til baka Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Allt að 18 stiga frost í dag Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Alma auglýsir tvær forstjórastöður Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Ökumaður kærður fyrir svigakstur Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fær rúmar 45 milljónir í vasann 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Gengur langt ef þess þarf Tímabilið búið eftir aðeins tvo leiki Landsliðsþjálfarinn pirraður: Ég tók ekki þessa ákvörðun Í Frakklandi eru bollur í boði allan ársins hring Hjálpaði mönnum að kaupa kynlíf af eiginkonu sinni Góðar sögur eru sígildar Það er skýrt, borgarlína er óþörf Fleira áhugavert Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Lögreglan sökuð um misferli í morðmáli Besti árangur Íslendings í 20 ár Líkamsárásirnar tvær líklega ótengdar Dregur framboð sitt til baka Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Allt að 18 stiga frost í dag Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Alma auglýsir tvær forstjórastöður Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Ökumaður kærður fyrir svigakstur Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fær rúmar 45 milljónir í vasann 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri

Share this article