Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir

Read Full Article →

Innlent | mbl | 5.5.2026 | 22:10 | Uppfært 22:26 Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Rúna við teikniborðið. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Myndlistarkonan Sigrún Guðjónsdóttir, Rúna, er látin. Hún lést 4. maí. Hún fæddist 15. nóvember 1926 og var því á hundraðasta aldursári. Rúna fæddist í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði frá ungum aldri, hún var dóttir Guðjóns Guðjónssonar, skólastjóra Barnaskóla Hafnarfjarðar, og Ragnheiðar Jónsdóttur, kennara og rithöfundar. Hún hóf myndlistarnám við Handíða og myndlistarskólann við Grundarstíg, árið 1942 og tók að loknu námi þar teiknikennarapróf við Kennaraskóla Íslands. Í Handíðaskólanum hitti hún Gest Þorgrímsson frá Laugarnesi, sem stundaði einnig nám þar. Þau giftu sig eftir að þau höfðu lokið námi og héldu til Kaupmannahafnar og stunduðu nám við Konunglega listaakademíið. Þau störfuðu síðan saman alla tíð og hugtakið Gestur & Rúna varð að sjálfstæðu hugtaki í íslensku listalífi. Gestur og Rúna komu heim að námi loknu og stofnuðu leirmunagerðina Laugarnesleir ásamt tveimur vinum sínum, listafólki frá Sviss og Skotlandi, og leirmunir frá þessu unga listafólki vakti talsverða athygli og seldust vel en nokkrum árum síðar hættu þau þó rekstri Laugarnesleirs. Rúna bjó til vinsæla þjóðhátíðarplatta sem voru seldir fyrir 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar 1974. Hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands Næstu áratugina fékkst Rúna við kennslu, myndlýsingar á bókum og ýmislegt fleira, auk barnauppeldis en þeim hjónum fæddust fjögur börn. Barnabörnin eru orðin 13, barnabarnabörnin 17 og eitt barnabarnabarnabarn. Gestur og Rúna ráku lengi verkstæði á Laugarásvegi 7 í Reykjavík en fluttu 1981 til Hafnarfjarðar og bjuggu á Austurgötu 17 þar sem þau ráku listavinnustofu og lítið gallerí. Myndlist Rúnu hefur vakið mikla athygli á undanförnum áratugum og hún hélt sýningar víða um heim. Á seinni áratugum er Rúna ekki síst kunn fyrir myndir sínar á postulínsflísum og akrylverk á japanskan pappír, einnig stór útiverk sem hún vann ýmist ein eða í félagi við Gest, og 1974 urðu þrír þjóðhátíðarplattar hennar hlutskarpastir í samkeppni sem haldin var í tilefni af þjóðhátíðinni 1974. Gestur lést snemma árs 2003 en þá höfðu þau látið breyta vinnustofunni í snotra íbúð og þar bjó Rúna ein uppfrá því en þrjú barna hennar bjuggu lengi í næsta nágrenni. Hún fékk pláss á dvalarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði síðsumars í fyrra og naut afbragðs aðhlynningar þar. Hún hélt góðri andlegri heilsu til hins síðasta. Morgunblaðið ræddi við Rúnu þegar hún hlaut heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands árið 2023 fyrir framlag sitt til leirlistar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þetta eru sigurstranglegustu lögin í Eurovision Blikar jöfnuðu metin með stórsigri Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir „Bókaðu mig næstu tíu árin“ „Þurfum að halda haus og klára leikinn“ Umræðan Enginn einn í lokin Bandamenn á umrótatímum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spánn tekur við skipinu með hantaveirunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Tveir fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Þetta eru sigurstranglegustu lögin í Eurovision Blikar jöfnuðu metin með stórsigri Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir „Bókaðu mig næstu tíu árin“ „Þurfum að halda haus og klára leikinn“ Umræðan Enginn einn í lokin Bandamenn á umrótatímum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spánn tekur við skipinu með hantaveirunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Hafna fyrirspurn og gestakomum Áhættumat ekki gert eftir tilfinningu Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Tveir fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás

Share this article